Anna Hulda Ólafsdóttir, doktorsnemi við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild
Innleiðing gæðastjórnunarkerfis fyrir verklegar framkvæmdir er líkleg til þess að auka ánægju verktaka og viðskiptavina þeirra,“ segir Anna Hulda Ólafsdóttir, doktorsnemi í iðnaðarverkfræði, en hún rannsakar kosti og galla gæðastjórnunarkerfis fyrir verktaka og verkkaupa. Anna segir margt í framkvæmdaferli mannvirkja geta farið úrskeiðis á framkvæmdatíma, ekki síst þegar margir aðilar eiga í hlut. Þegar slíkt gerist stendur framkvæmdin ekki undir væntingum. „Gæði framkvæmdarinnar felast í því að hún sé eins og stofnað var til í upphafi og þá skiptir höfuðmáli að verkefnið hafi verið vel skilgreint í upphafi.“
Anna Hulda Ólafsdóttir
Anna segir margt í framkvæmdaferli mannvirkja geta farið úrskeiðis á framkvæmdatíma, ekki síst þegar margir aðilar eiga í hlut. Þegar slíkt gerist stendur framkvæmdin ekki undir væntingum.

MA-verkefni Önnu snerist um notkun gæðastjórnunarkerfis og ánægju verkkaupa. „Það er marktækur munur og sterk fylgni milli ánægju verkkaupa með framkvæmd verks sem verktaki vann og hvort verktaki starfar eftir gæðastjórnunarkerfi eða ekki.“ Einnig sýna niðurstöður að vinnubrögð þeirra verktaka sem kveðast starfa eftir gæðastjórnunarkerfi eru mun markvissari og skilvirkari en þeirra sem starfa ekki eftir slíku kerfi. Að lokum leiddi rannsóknin í ljós að staða gæðastjórnunar í mannvirkjagerð á Íslandi er sérlega slök meðal smárra verktakafyrirtækja.
Doktorsverkefni Önnu snýst hins vegar um ávinning verktakans af notkun gæðastjórnunarkerfis. Til þess notar hún kvik kerfislíkön. „Þau eru öflugt tæki sem auðveldar mat á flóknum viðfangsefnum, t.d. mat á verklegum framkvæmdum þar sem ófyrirsjáanleg seinkun á einum framkvæmdalið getur í framhaldinu haft áhrif á alla framkvæmdina,“ segir Anna sem vonast til að með þessu fáist betri yfirsýn en hingað til á þau heildaráhrif sem notkun gæðastjórnunar hefur fyrir verktaka. „Sumir iðnaðarmenn og verktakar telja að gæðastjórnunarkerfi sé íþyngjandi, einkum fyrir smærri fyrirtæki. Þetta ætla ég að rannsaka og kannski sýna niðurstöðurnar fram á hið gagnstæða.“
Leiðbeinendur: Gunnar Stefánsson, dósent við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands, og Helgi Þór Ingason, dósent við Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík.