Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir,diplómanemi við Félags- og mannvísindadeild
Fötlunarpólitík og fötlunarlist er gott tæki í baráttunni fyrir réttindum fatlaðs fólks, segir Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir, diplómanemi í fötlunarfræðum við Félags- og mannvísindadeild. Hún vakti verðskuldaða athygli á opnum degi Menntavísindasviðs í september síðastliðnum þar sem hún opnaði bæði ljósmyndasýningu og stóð fyrir uppistandi og gjörningi í lyftu.
Ljósmyndasýningin „Fullgild þátttaka“ og leikritið „The Normal Show“ var hluti af BA-verkefni Kolbrúnar í þroskaþjálfafræðum. „Þessi verkefni voru unnin í samvinnu við fjöllistahóp sem ég hafði umsjón með sem hluta af vettvangsnámi mínu síðastliðna vorönn. Í fjöllistahópnum voru sjö nemendur sem stunda starfstengt diplómanám fyrir fólk með þroskahömlun á Menntavísindasviði,“ segir Kolbrún.
Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir
Ljósmyndasýningin „Fullgild þátttaka“ og leikritið „The Normal Show“ var hluti af BA-verkefni Kolbrúnar í þroskaþjálfafræðum

Kolbrún var listrænn stjórnandi ljósmyndasýningarinnar en Jónatan Grétarsson tók allar myndirnar. Ljósmyndasýningin og leikritið eru unnin í anda fötlunarlistar, að sögn Kolbrúnar. „Myndirnar sýna fatlað fólk á jákvæðan hátt sem fullgilda þátttakendur á almennum vinnumarkaði, í tengslum við listir og menningu, og við bregðum okkur í hlutverk þjóðþekkts fólks. Við erum að vekja upp spurningar: Hvað er fötlun? Getur maður með Downs-heilkenni ekki verið þekktur leikari eða alþingismaður?“ segir Kolbrún, sem brá sér í hlutverk Ernu Ómarsdóttur listdansara á einni af myndunum.
Uppistandið og gjörningurinn í lyftunni voru Kolbrúnu ekki algerlega framandi þótt hún hafi verið að fremja þennan tiltekna gjörning í fyrsta sinn. „Ég hef verið virk í uppistandi frá árinu 2008 með Hjólastólasveitinni. Sveitina skipa fjórir hreyfihamlaðir uppistandarar á hjólum og einn uppistandandi. Ég fjalla um lífið og tilveruna í landi tækifæranna. Þetta er ákveðin ádeila í gegnum húmor sem afhjúpar meðal annars þær hindranir sem fatlað fólk mætir,“ segir Kolbrún, sem jafnframt beitir sér í gegnum nám sitt í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands.