Hilda H. Cortez, MS frá Hagfræðideild
„Geðlyfjakostnaður hér á landi er mjög mikill og það er því ákveðið hagsmunamál að lyfin slái þannig á einkenni geðraskana að fólk verði vinnufært eða í það minnsta að veikindadögum fækki,“ segir Hilda H. Cortez, MS í hagfræði, um rannsókn sem hún vann í fyrrasumar með styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna.
Hilda réðst í rannsóknina í framhaldi af meistararitgerð sinni í hagfræði þar sem hún gerði kostnaðarnytjagreiningu á hugrænni atferlismeðferð (HAM) við þunglyndi í samanburði við lyfjameðferð. „Kostnaðarnytjagreining er aðferð sem er notuð til þess að meta hagkvæmni ákveðinna íhlutana eins og þunglyndismeðferðar. Eftir að hafa legið yfir rannsóknum á árangri slíkrar meðferðar langaði mig að skoða áhrif lyfjameðferðar enn frekar,“ segir Hilda.
Hilda H. Cortez
„Geðlyfjakostnaður hér á landi er mjög mikill og það er því ákveðið hagsmunamál að lyfin slái þannig á einkenni geðraskana að fólk verði vinnufært eða í það minnsta að veikindadögum fækki.“

Í rannsókninni kannaði Hilda áhrif geðraskana og geðlyfjanotkunar á atvinnuþátttöku, tekjur og fjölda veikindadaga. Hún skoðaði hvort munur væri á milli þeirra einstaklinga sem greindir voru með þunglyndis- eða kvíðaraskanir og höfðu fengið geðlyf og þeirra sem hlotið höfðu sömu greiningu en aldrei fengið slík lyf.
„Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að lyfjameðferð dragi úr fjölda veikindadaga hjá þeim sem eru á vinnumarkaði og auki líkur á atvinnuþátttöku. Rannsóknin leiddi hins vegar einnig í ljós að ákveðnum hópi sem hefur verið greindur með þunglyndis- eða kvíðaröskun en aldrei verið meðhöndlaður með lyfjum vegnar betur en hinum hópunum þar sem lyfjameðferð var beitt,“ segir Hilda enn fremur.
Hún bendir einnig á að rannsóknin gefi vísbendingar um hvar frekari rannsókna er þörf „en það er nokkuð ljóst að það þarf að skoða nánar þann mun sem kemur fram á milli hópanna, sérstaklega til þess að rannsaka betur áhrif lyfjanotkunar á atvinnuþátttöku, tekjur og fjölda veikindadaga.“
Leiðbeinandi: Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, lektor við Hagfræðideild.