Hilda Kristjánsdóttir, MA-nemi við Félags- og mannvísindadeild
„Markmiðið er að ljá þöglum röddum þeirra sem störfuðu og bjuggu á Kárahnjúkasvæðinu ákveðinn hljóm,“ segir Hilda Kristjánsdóttir um meistararannsókn sína sem hún nefnir „Týnda samfélagið – Kárahnjúkar“ en Nýsköpunarsjóður námsmanna styrkti þetta verkefni Hildu.
Hún segir að áhuginn á verkefninu hafi vaknað í námi hennar í safnafræði; þar hafi hún fundið nauðsyn þess að safna munnlegum heimildum hjá fólkinu við Kárahnjúka sem átti svo ríkan þátt í einstökum kafla í sögu Íslands á tæpum áratug.
„Ég vildi varðveita minningar þessa fólks um þennan merkilega atburð í sögu Íslands þegar heilt samfélag var byggt upp á hálendi Íslands. Ég vil líka opna fólki sýn á ýmsar hliðar á þessu samfélagi sem ekki hafa allar verið sýnilegar utan þess.“
Hilda Kristjánsdóttir
Hilda segir að áhuginn á verkefninu hafi vaknað í námi hennar í safnafræði; þar hafi hún fundið nauðsyn þess að safna munnlegum heimildum hjá fólkinu við Kárahnjúka sem átti svo ríkan þátt í einstökum kafla í sögu Íslands á tæpum áratug.

Hilda segir að fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar sýni hversu gríðarleg stéttaskipting hafi verið á svæðinu en of snemmt sé að spá fyrir um hverju rannsóknin skili í heild enda sé hún of skammt á veg komin.
„Þar sem þetta er rannsókn á einstökum þætti í sögu Íslands verða upplýsingarnar líka sérstakar. Það er mjög mikilvægt að mann- og félagslegir þættir séu hafðir að leiðarljósi í slíkum verkefnum enda leika þeir stórt hlutverk. Einnig er nauðsynlegt að horfa ekki bara til samfélagsins við Kárahnjúka í rannsókninni, heldur taka líka tillit til þess stóra samfélags sem er fyrir utan þetta litla við Kárahnjúka. Það verður að horfa á heildina,“ segir Hilda.
Hún vonast til þess að draga megi lærdóm af niðurstöðum rannsóknarinnar og hafa hann að leiðarljósi ef einhvern tímann verður aftur ráðist í mannvirkjagerð sem krefst sambærilegra umsvifa.
Leiðbeinendur: Valdimar Tryggvi Hafstein, dósent við Félags- og mannvísindadeild, og Elfa Hlín Pétursdóttir, safnstjóri Minjasafns Austurlands.