Skip to main content

Tengsl andlegrar líðanar og hreyfingar

Sunna Gestsdóttir, doktorsnemi við Menntavísindasvið

„Við viljum kanna breytingar sem orðið hafa á holdafari, hreyfingu, þreki, andlegri líðan og félagslegum þáttum hjá íslenskum ungmennum. Það þverfaglega teymi sem kemur að vinnunni er mikilvægur þáttur rannsóknarinnar og stuðlar að fjölbreyttri nálgun ólíkra fræðasviða. Ég legg áherslu á að kanna andlega líðan þátttakenda og rannsaka tengsl hennar við holdafar og hreyfingu,“ segir Sunna Gestsdóttir, doktorsnemi í íþrótta- og heilsufræði, um rannsóknina „Atgervi ungra Íslendinga.“

Sunna tengist rannsókninni sterkum böndum þar sem hún helgaði líf sitt afreksíþróttamennsku í 15 ár. „Á fyrri námsstigum rannsakaði ég áhrif hreyfingar á líðan ungmenna og síðar andlega reynslu afreksíþróttafólks af afreksmennskunni,“ segir Sunna.

Sunna Gestsdóttir

„Ég legg áherslu á að kanna andlega líðan þátttakenda og rannsaka tengsl hennar við holdafar og hreyfingu.“

Sunna Gestsdóttir

„Atgervi ungra Íslendinga“ er framhald rannsóknarinnar „Lífsstíll 9 og 15 ára Íslendinga“ sem fór fram á árunum 2003 til 2004. Þátttakendur eru þeir sömu og í fyrri rannsókninni, nærri þúsund talsins, en eru nú orðnir 17 og 23 ára. Þetta er í fyrsta sinn sem þróun og breytingar á umræddum heilsufarsþáttum eru kannaðar jafnhliða í tveimur landsúrtökum á Íslandi. Niðurstöður fyrri rannsóknarinnar sýndu að þátttakendur hreyfðu sig of lítið og voru of þungir í samanburði við aðrar þjóðir.

„Það verður spennandi að sjá hvernig málin hafa þróast hjá þátttakendum nú átta árum síðar. Niðurstöðurnar munu vonandi ekki aðeins geta varpað ljósi á þær sálfélagslegu breytingar sem eiga sér stað frá unglingsárum til fullorðinsára Íslendinga heldur einnig leiðbeint stjórnmálamönnum og heilbrigðisyfirvöldum varðandi úrræði og bjargir til að hamla gegn einni almestu lýðheilsuvá sem jarðarbúar standa nú andspænis, þ.e.a.s. offitunni,“ segir Sunna að lokum.

Rannsóknin er hluti af evrópskri rannsókn, European Youth Heart Study (EYHS).

Þrír doktorsnemar og þrír meistaranemar vinna að rannsókninni. Auk Sunnu eru það Sandra Jónasdóttir, íþróttafræðingur og doktorsnemi, Hervör Alma Árnadóttir, félagsráðgjafi og doktorsnemi, Margrét H. Indriðadóttir, sjúkraþjálfari og meistaranemi, Eygló Traustadóttir, sjúkraþjálfari og meistaranemi, og Elvar Sævarsson, íþróttafræðingur og meistaranemi.

Verkefnisstjóri rannsóknarinnar: Erlingur S. Jóhannsson, prófessor við Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild.