Auðbjörg Þóra Óskarsdóttir, MS-nemi við Sálfræðideild
„Þessi rannsókn leggur til nýtt mælitæki sem metur vinnustreitu í íslensku starfsumhverfi. Lokaafurðin verður áreiðanlegt og réttmætt mælitæki sem verður hægt að nota bæði í rannsóknum og á hinum almenna vinnumarkaði,“ segir Auðbjörg Þóra Óskarsdóttir, um gagnsemi rannsóknar sem hún vinnur nú að.
Þegar Auðbjörg hóf meistaranám í sálfræði vakti hugtakið streita og þá sérstaklega vinnustreita strax áhuga hennar. Hún segir eitthvað dulið og flókið við hugtakið og að fræðimenn séu ekki sammála um hvernig beri að skilgreina og mæla það.
Auðbjörg viðurkennir að hún eigi til að sökkva sér í flókna hluti. Lokaverkefni hennar í meistaranámi í sálfræði er að hanna og forprófa mælitæki, í formi spurningalista, sem notað er til að meta vinnustreitu í íslensku starfsumhverfi.
Auðbjörg Þóra Óskarsdóttir
„Þessi rannsókn leggur til nýtt mælitæki sem metur vinnustreitu í íslensku starfsumhverfi. Lokaafurðin verður áreiðanlegt og réttmætt mælitæki sem verður hægt að nota bæði í rannsóknum og á hinum almenna vinnumarkaði.“

Hér á landi hefur verið notast við atriði úr erlendum spurningalistum til að mæla vinnustreitu og hafa þau ekki alltaf átt við íslenskar aðstæður. Í rannsókn Auðbjargar er öðruvísi nálgun beitt við smíði spurninganna. Í stað þess að semja spurningar eftir öðrum listum lagði hún fyrir þátttakendur ákveðnar dæmisögur sem innihéldu lýsingar á aðstæðum á vinnustað. Þeir lýstu svo þeim hugsunum, tilfinningum og hegðun sem væri líkleg til að eiga sér stað við slíkar aðstæður. Svör þátttakenda voru síðan notuð til að útbúa spurningarnar.
Niðurstöður fyrstu forprófana liggja fyrir þar sem áreiðanleiki mælitækisins var skoðaður. Næsta skref er að gera réttmætisprófanir á því. Auðbjörg segir þróun spurningalista sem mælitækis vera langt og breytilegt ferli og að enn sé mikil vinna eftir.
Auðbjörg bendir á að niðurstöður geti einungis orðið eins góðar og mælitækin sem stuðst er við og því sé mikið í húfi. Mikilvægt sé að huga vandlega að rannsóknartækjum, hvort sem það eru spurningalistar eða önnur tól.
Leiðbeinendur: Fanney Þórsdóttir, lektor við Sálfræðideild, og Daníel Þór Ólason, dósent við Sálfræðideild.