Skip to main content

Geðheilsa kvenna á meðgöngu

Jón Friðrik Sigurðsson, prófessor við Læknadeild og yfirsálfræðingur á geðsviði Landspítala

„Þegar rannsóknarhópurinn kom upphaflega saman og skoðaði hvaða þekking væri til staðar um geðheilsu kvenna á meðgöngu og eftir barnsburð kom í ljós að töluverður skortur var á upplýsingum um íslenskar konur,“ segir Jón Friðrik Sigurðsson, prófessor við Læknadeild. Hann leiðir langtímarannsókn sem unnið er að á geðheilsu kvenna á meðgöngu og eftir barnsburð. „Ásamt því að rannsaka líðan kvennanna á meðgöngu og eftir barnsburð eru áhrif fjölmargra sálfélagslegra þátta skoðuð,“ segir Jón Friðrik enn fremur.

Jón Friðrik Sigurðsson

„Með rannsókninni munu fást upplýsingar um þörf á þjónustu fyrir konur með kvíða og þunglyndi á meðgöngu og eftir barnsburð og mótaðar verða skimunar- og greiningaraðferðir sem ættu að koma að góðum notum í mæðravernd í framtíðinni.“

Jón Friðrik Sigurðsson

Hann segir að kveikjan að rannsókninni hafi komið frá Halldóru Ólafsdóttur yfirlækni og rannsóknin hafi það að markmiði að þróa úrræði fyrir konur í áhættu á þunglyndi á meðgöngu og eftir barnsburð. Hann segir að erlendar rannsóknir á sviðinu hafi aðallega beinst að þunglyndi og þá sérstaklega fæðingarþunglyndi. „Lítið var fjallað um aðrar lyndis- og kvíðaraskanir. Einnig voru takmarkaðar upplýsingar til um geðheilsu á meðgöngu,“ bætir hann við.

Jón Friðrik segir að verið sé að vinna úr niðurstöðum sem teymið hefur aflað en fyrir síðustu jól var lokið við að taka inn nýja þátttakendur í rannsóknina. Rannsóknin er að hluta til doktorsverkefni Lindu Báru Lýðsdóttur, doktorsnema við Læknadeild Háskóla Íslands. „Með rannsókninni munu fást upplýsingar um þörf á þjónustu fyrir konur með kvíða og þunglyndi á meðgöngu og eftir barnsburð og mótaðar verða skimunar- og greiningaraðferðir sem ættu að koma að góðum notum í mæðravernd í framtíðinni,“ segir hann að lokum.