Skip to main content

Skype-ráðgjöf viðheldur færni í dreifbýli

Zuilma Gabriela Sigurðardóttir, dósent við Sálfræðideild

„Verið er að skoða áhrif fjarlækninga, s.s. með Skype, og aðferða atferlisgreiningar á kennslufærni foreldra og boðskiptafærni barna þeirra með þroskaraskanir,“ segir Zuilma Gabriela Sigurðardóttir, dósent í atferlisgreiningu og atferlismeðferð, um rannsókn sem hún vinnur að.

Þátttakendur eru fjölskyldur sem búa í dreifbýli og hafa takmarkaðan aðgang að sérhæfðri meðferð. „Foreldrum og börnum verður kennt að „dansa saman“ kennsludans sem dr. Shahla Ala‘i- Rosales, dósent við University of North Texas, hefur þróað. Hann byggist á  kennsluaðferðum hagnýtrar atferlisgreiningar og rannsókn Hart og Risley á  máltöku barna. Hart og Risley líktu því ferli við dans þar sem samskipti barna og foreldra breytast smám saman úr því að vera samhliða í að vera gagnkvæm. Sum börn með þroskaraskanir eiga  erfiðara en önnur með að læra sporin og taka þátt í dansinum með foreldrum,“ útskýrir Zuilma.

Zuilma Gabriela Sigurðardóttir

„Verið er að skoða áhrif fjarlækninga, s.s. með Skype, og aðferða atferlisgreiningar á kennslufærni foreldra og boðskiptafærni barna þeirra með þroskaraskanir.“

Zuilma Gabriela Sigurðardóttir

Rannsóknina vinnur Zuilma í samstarfi við Kristínu Guðmundsdóttur, doktorsnema í sálfræði, og fyrrnefnda Ala‘i-Rosales. Hugmyndin að rannsókninni, sem miðar að auknum lífsgæðum barnanna og fjölskyldna þeirra, kviknaði hjá Kristínu þegar hún var ráðgjafi við leik- og
grunnskóla í dreifbýli á Austurlandi. „Í ráðgjöfinni var erfitt að setja af stað og fylgja eftir markvissri og sérhæfðri íhlutun hjá börnum sem bjuggu afskekkt. Verkfæri voru til staðar, svo sem sérfræðiþekking og myndfundarbúnaður, en aðferðir og gagnreyndar upplýsingar um árangur af slíkum verkfærum skorti,“ segir Zuilma.

Þótt heildarniðurstöður hafi ekki verið birtar benda niðurstöður forprófunar á einni fjölskyldu til þess að Skype-ráðgjöf viðhaldi færni foreldris og barns. „Niðurstöður fjölmargra rannsókna staðfesta að hægt er að bæta færni barna með þroskaraskanir með markvissri íhlutun sem er byggð á aðferðum atferlisgreiningar,“ segir Zuilma að lokum.