Lovísa Árnadóttir, MA frá Félags- og mannvísindadeild
„Rannsóknin er innlegg í umræðu um stöðu Facebook sem markaðstækis fyrir fjölmiðla, hvernig háskólanemar nota Facebook til að dreifa fréttum og hvaða áhrif þetta gæti haft á fréttamennsku og þróun fjölmiðla á Íslandi,“ segir Lovísa Árnadóttir, um meistaraverkefni sitt í blaða- og fréttamennsku, sem hún vann á síðasta ári.
MA-ritgerð Lovísu ber titilinn „Ég frétti það á Facebook: Vinsældir frétta á stærsta samfélagsvef heims.“ Aðspurð um tilurð verkefnisins segir hún að henni hafi fundist vanta rannsóknir og umræðu um fréttir og samfélagsvefi á Íslandi. „Hugmyndin að ritgerðinni var sú staðreynd að fimmtungur þeirra sem heimsækja mbl.is á degi hverjum koma beint af Facebook. Þetta háa hlutfall kom mér á óvart og í kjölfarið fór hugurinn að leita í allar áttir. Vefir sem fjármagna sig með auglýsingasölu hljóta að reyna að höfða til Facebook-notenda svo að heimsóknir á vefinn og flettingar verði sem flestar. Það gæti haft áhrif á ritstjórnarstefnu,“ bendir Lovísa á.
Lovísa Árnadóttir
„Hugmyndin að ritgerðinni var sú staðreynd að fimmtungur þeirra sem heimsækja mbl.is á degi hverjum koma beint af Facebook. Þetta háa hlutfall kom mér á óvart og í kjölfarið fór hugurinn að leita í allar áttir.“

Í rannsókn sinni bar Lovísa saman þær fréttir mbl.is sem fengu flestar tilvísanir af Facebook og mest lesnu fréttir lesenda mbl.is sem ekki komu af Facebook. Skoðuð voru tvö mismunandi tímabil, fyrir og eftir tilkomu „Líkar“-takkans. Einnig var m.a. kannað hvers konar fréttum háskólanemar deildu, af hverju þeir deildu þeim og hvort þeir skoðuðu fréttir sem aðrir deila.
Niðurstöðurnar sýna að með tilkomu „Líkar“-takkans hefur tilvísunum frá Facebook fjölgað mikið og háskólanemar eru duglegir við að dreifa fréttaefni. Einnig eru yfirgnæfandi líkur á að þeir lesi það sem vinir þeirra deila á Facebook. Afþreyingarefni er það efni sem mest er lesið á mbl.is og mest dreift á Facebook.
„Samt er mikill munur á því hvaða fréttir fólk les og hvaða fréttum það deilir á Facebook, þó að fréttirnar séu innan sama efnisflokks. Svo virðist sem stærsti þátturinn í þeirri ákvörðun að deila frétt á Facebook sé sá félagslegi,“ segir Lovísa.
Leiðbeinandi: Valgerður Jóhannsdóttir, aðjunkt við Félags- og mannvísindadeild.