Guðný Guðbjörnsdóttir, prófessor við Uppeldis- og menntunarfræðideild
Ísland og hin norrænu ríkin eru framarlega á flestum mælikvörðum um jafnréttismál en margt bendir til að gera megi betur. Jafnréttislögin hafa kveðið á um jafnréttisfræðslu í skólum í yfir 30 ár en það var fyrst árið 2008 að jafnréttismál urðu lögbundin kennslugrein í grunnskólum. Með nýjum námskrám frá 2011 er jafnrétti ein af grunnstoðum menntunar á öllum skólastigum.
Á alþjóðadegi kennara í fyrra var áhersla lögð á kynjajafnrétti, ekki síst á hlutverk kennara og skóla í að kveða niður staðalímyndir kynjanna. Samkvæmt reglum Háskóla Íslands er það Kennaradeild á Menntavísindasviði sem ákveður hvernig kennaranám er samsett. Því eru þeir sem mennta kennara og viðhorf þeirra í brennidepli í rannsókn sem Guðný Guðbjörnsdóttir, prófessor í uppeldis- og menntunarfræði, og fleiri vinna að á vegum Rannsóknastofu um jafnrétti, kyngervi og menntun (RannKyn).
Guðný Guðbjörnsdóttir
„Markmiðið er að kanna viðhorf ráðandi aðila til fræðslu um jafnréttismál í fimm ára kennaramenntun á Menntavísindasviði. Þar er sérstök áhersla lögð á að rannsaka kynjajafnrétti, hvort breytingar á fræðslu um jafnréttismál séu æskilegar og þá hverjar.“

„Markmiðið er að kanna viðhorf ráðandi aðila til fræðslu um jafnréttismál í fimm ára kennaramenntun á Menntavísindasviði. Þar er sérstök áhersla lögð á að rannsaka kynjajafnrétti, hvort breytingar á fræðslu um jafnréttismál séu æskilegar og þá hverjar. Athyglinni verður síðar beint að kennaranemum og viðhorfum þeirra til jafnréttismála, því næst að verkefnum í leik-, grunn- og framhaldsskólum og loks að alþjóðlegum samanburði,“ segir Guðný. Gagnrýnt hefur verið að ekki sé farið að gildandi lögum að þessu leyti og því fól Jón Torfi Jónasson, forseti Menntavísindasviðs, Guðnýju að kanna stöðu mála.
Allt frá árinu 1990 hafa jafnréttismál verið eitt af rannsóknarsviðum Guðnýjar. Hún er nú í samstarfi við háskóla í Finnlandi og Bandaríkjunum á þessu sviði og hún telur því góða möguleika á alþjóðlegum samanburði og fræðiskrifum í tengslum við rannsóknina.