Dagný Yrsa Eyþórsdóttir, BS-nemi við Matvæla- og næringarfræðideild
„Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða hvernig fiskneysla Íslendinga hefur breyst frá árinu 2006, en niðurstöður rannsóknar sem gerð var þá leiddi í ljós að dregið hafði úr fiskneyslu, einkum hjá ungu fólki. Jafnframt átti að greina viðhorf neytenda á aldrinum 18 til 80 ára, og ákvarðandi þætti á viðhorf,“ segir Dagný Yrsa Eyþórsdóttir, nemandi í næringarfræði. Í fyrrasumar rannsakaði hún á vegum Matís fiskneyslu íslensku þjóðarinnar og viðhorf til hennar og naut til þess stuðnings frá Nýsköpunarsjóði námsmanna.
Dagný Yrsa Eyþórsdóttir
„Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða hvernig fiskneysla Íslendinga hefur breyst frá árinu 2006, en niðurstöður rannsóknar sem gerð var þá leiddi í ljós að dregið hafði úr fiskneyslu, einkum hjá ungu fólki.“

Dagný bar niðurstöður sínar saman við niðurstöður sambærilegrar rannsóknar sem leiðbeinendur hennar gerðu árið 2006. Niðurstöður Dagnýjar sýndu að fólk á aldrinum 18-80 ára borðar fisk að meðaltali 7,9 sinnum í mánuði eða u.þ.b. tvisvar í viku. Er það smávægileg aukning á fiskneyslu frá árinu 2006. „Neyslan er ekki í samræmi við manneldismarkmið en þó skref í rétta átt. Sjá mátti að nýjar fisktegundir eru að koma sterkar inn þótt ýsa sé enn vinsælasta tegundin á borðum landsmanna. Neysla þorsks hefur t.d. tvöfaldast frá 2006,“ bendir Dagný á.
Hún segir minnkandi fiskneyslu slæma þróun, þótt bót sé í máli að hún hafi tekið eilítið við sér frá 2006, „þar sem margar rannsóknir hafa sýnt að regluleg neysla fisks getur haft jákvæð áhrif á heilsufar enda inniheldur fiskur m.a. lífsnauðsynlegar fitusýrur.“
Við framkvæmd rannsóknarinnar studdist Dagný við úrtak fólks frá 18 til 80 ára úr þjóðskrá og aflaði gríðarlegra gagna og upplýsinga. „Því er ekki búið að vinna úr öllum þeim upplýsingum sem verkefnið býður upp á,“ segir hún enn fremur.
Leiðbeinendur: Kolbrún Sveinsdóttir, Gunnþórunn Einarsdóttir og Emilía Martinsdóttir, starfsmenn Matís.
Dagný Yrsa lauk BS námi í næringarfræði frá Háskóla Íslands vorið 2012.