Eva Rún Michelsen, MS frá Viðskiptafræðideild
„Kveikjan að rannsókninni voru fræðigreinar sem ég hafði lesið þar sem fram kom að konur væru áhættufælnari en karlmenn og að þær væru ekki eins sjálfselskar og þeir,“ segir Eva Rún Michelsen sem kannaði nýverið hvort konur væru gjafmildari en karlar.
Eva Rún, sem nýverið lauk meistaraprófi í stjórnun og stefnumótun frá Viðskiptafræðideild, lagði spurningar fyrir nemendur í viðskiptafræði við fjóra háskóla á Íslandi: Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Háskólann á Akureyri og Háskólann á Bifröst. Þar kannaði hún hvort munur væri á framlagi kynjanna til góðgerðamála.
Eva Rún Michelsen
„Niðurstöður voru þær að konur virðast gefa meira til góðgerðamála en karlmenn. Munurinn var ekki mikill en tilgátan var engu að síður staðfest með 95% vikmörkum.

„Niðurstöður voru þær að konur virðast gefa meira til góðgerðamála en karlmenn. Munurinn var ekki mikill en tilgátan var engu að síður staðfest með 95% vikmörkum. Einnig athugaði ég hvort munur væri á gjafmildi nemenda eftir skólum en svo reyndist ekki vera,“ segir Eva Rún og vekur athygli á því að rannsóknin hafi aðeins náð til ákveðins hóps háskólanema.
„Rannsóknin er viðbót við þær rannsóknir sem þegar hafa verið gerðar á muninum á kynjunum. Líkur eru á að konur gefi almennt meira af sér en karlmenn þegar kemur að góðgerðamálum. Þetta gæti einnig tengst áhættufælni og launamun kynjanna en miðað við þessar niðurstöður og aðrar rannsóknir eru líkur á að launamunur kynjanna sé að hluta til kominn til vegna gjafmildi og áhættufælni kvenna. Á ég þá við að þær gefi mikið af sér en geri ekki jafnmiklar kröfur og karlmenn, til dæmis um laun,“ segir Eva Rún enn fremur.
Leiðbeinandi: Kári Kristinsson, lektor við Viðskiptafræðideild.