Skip to main content

Tillögur að bestu hönnun virkjana

Andri Gunnarsson, MS frá Umhverfis- og byggingarverkfræðideild

„Líkanið sjálft er um 200 fermetrar og er byggt af mikilli nákvæmni. Meginmarkmiðið er að rýna í hönnun straumfræðilegra mannvirkja, sannreyna hana og leggja til breytingar á henni vegna fyrirhugaðra vatnsaflsvirkjana í Neðri-Þjórsá,“ segir Andri Gunnarsson, meistaranemi í umhverfis- og byggingarverkfræði, um líkan sem hann hefur hannað í tengslum við meistaraverkefni sitt.

Andri Gunnarsson

„Líkanið sjálft er um 200 fermetrar og er byggt af mikilli nákvæmni. Meginmarkmiðið er að rýna í hönnun straumfræðilegra mannvirkja, sannreyna hana og leggja til breytingar á henni vegna fyrirhugaðra vatnsaflsvirkjana í Neðri-Þjórsá.“

Andri Gunnarsson

Kveikjan að rannsókn Andra var verkefni sem hann vann í grunnnámi við Háskólann í Reykjavík. Í samvinnu við Gunnar G. Tómasson verkfræðing gerði hann straumfræðilegt líkan til svokallaðrar kvörðunar á rennslismannvirki í Hraunaveitu viðKárahnjúka. Í framhaldi af því fór Andri að huga að meistaraverkefni og fékk til liðs við sig Sigurð M. Garðarsson hjá Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands og Gunnar G. Tómasson. Úr varð verkefni sem Andri vinnur nú að fyrir Landsvirkjun í samstarfi við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og Siglingastofnun Íslands. „Helstu atriði sem við erum að skoða eru m.a. flóðvirki, þ.e. mannvirki sem takast á við flóð, inntaksmannvirki og ýmis smærri mannvirki sem snúa að fiskigengd og seiðafleytingu um ána,“ segir Andri.

Það mun taka um tvö ár að vinna verkið og eru tilraunir gerðar hjá Siglingastofnun sem er með aðstöðu fyrir verklegar tilraunir. „Það má segja að niðurstöður verkefnisins séu tillögur að bestu hönnun mannvirkjanna enda eru þær unnar í nánu samstarfi við hönnuði virkjananna í Neðri-Þjórsá, verkfræðistofurnar Mannvit og Verkís,“ segir Andri.

Sams konar verkefni vegna virkjana hérlendis hafa hingað til verið unnin við háskóla erlendis, m.a. í Noregi, Svíþjóð og Sviss. Andri segist vonast til þess að í framhaldi af þessu verkefni verði önnur slík verkefni unnin hér heima því að það tryggi að þekking og hugvit verði eftir í landinu.

Leiðbeinendur: Sigurður Magnús Garðarsson, prófessor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild, og Gunnar Guðni Tómasson, HRV Engineering.

Andri lauk meistaraprófi frá Háskóla Íslands árið 2012.