Skip to main content

Söngþroski íslenskra barna

Helga Rut Guðmundsdóttir, lektor við Kennaradeild

„Greining gagnanna mun gefa mynd af söngþroska íslenskra fimm ára barna í samanburði við jafnaldra þeirra erlendis,“ segir Helga Rut Guðmundsdóttir, lektor í tónmennt, sem hefur undanfarin ár tekið þátt í alþjóðlegu rannsóknarverkefni um söngþroska barna, AIRS (Advancing Interdiciplinary Research in Singing).

„Áhugi minn á tónlistarþroska annars vegar og söng hins vegar urðu til þess að ég gerðist þátttakandi í AIRS-verkefninu á forstigum þess árið 2007 en styrkur hlaust til að hrinda því af stað árið 2009. Hér á landi höfum við safnað gögnum meðal fimm ára barna í nokkrum  leikskólum og er nú unnið að því að ganga frá gögnunum til frekari greiningar,“ segir Helga Rut.

Helga Rut Guðmundsdóttir

„Áhugi minn á tónlistarþroska annars vegar og söng hins vegar urðu til þess að ég gerðist þátttakandi í AIRS-verkefninu á forstigum þess árið 2007 en styrkur hlaust til að hrinda því af stað árið 2009.“

Helga Rut Guðmundsdóttir

„Börnin sem tóku þátt í rannsókninni eru úr leikskólum sem eru ýmist með mikið skipulagt tónlistarstarf eða ekki. Eitt af því sem við munum skoða meðal íslensku barnanna er hvort munur á þessum tveimur hópum mælist með söngþroskaprófi hvað söngfærni varðar,“ segir Helga Rut.

Verkefnið er styrkt af kanadískum rannsóknarsjóðum og leiðir saman fjölmarga rannsakendur á ólíkum fræðasviðum sem eiga það sameiginlegt að rannsaka söng með einhverjum hætti. „Hluti verkefnisins felst í því að leggja söngþroskapróf fyrir í mörgum löndum með það fyrir augum að þróa betri alþjóðleg próf en nú eru fyrir hendi,“ bendir hún á.

Helga Rut segir að gögnum með söng barna sé safnað í alþjóðlegan gagnagrunn sem rannsakendur hafi aðgang að á Netinu. „Þannig geta rannsakendur deilt gögnum og aukið möguleika á samanburði milli ólíkra aldurshópa í mörgum löndum.“