Skip to main content

Skógarvörður orðanna

Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor við Íslensku- og menningardeild

„Verkefnið snýst um að greina setningagerð íslensku allt frá fornmáli til nútímans og byggja upp svokallaðan trjábanka sem er  setningarlega greint orðasafn,“ segir Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor í íslenskri málfræði.

Hann vinnur nú að því að rækta þennan trjábanka sem hefur þá eftirsóttu náttúru að allir geta fengið lánað úr honum vaxtalaust. Bankinn er opinn á vefnum og hver sem er getur hlaðið honum niður ásamt leitarforriti, án greiðslu. Því má segja að Eiríkur geti hvort tveggja í senn kallast bankastjóri og skógarvörður orðanna. Hann segir að bankinn sé ómetanlegt hjálpartæki við rannsóknir á íslenskri setningagerð og þróun hennar undanfarin 800 ár.

Eiríkur Rögnvaldsson

„Verkefnið snýst um að greina setningagerð íslensku allt frá fornmáli til nútímans og byggja upp svokallaðan trjábanka sem er  setningarlega greint orðasafn.“

Eiríkur Rögnvaldsson

„Þegar er farið að nýta bankann til margvíslegra setningafræðilegra athugana, t.d. á breytingum á orðaröð frá fornmáli til nútímamáls. Trjábankinn nýtist bæði íslenskum og erlendum fræðimönnum en hann er einnig mjög mikilvægur fyrir þróun íslensks máltæknibúnaðar,  til dæmis fyrir þýðingarforrit og leiðréttingarforrit,“ segir Eiríkur.

Trjábankinn er ekki smár því að hann hefur að geyma eina milljón orða sem hafa verið setningagreind. Í bankanum eru bútar úr 60 textum frá því um 1200 fram í byrjun 21. aldar, allt að 20 þúsund orð úr hverjum bút. Eiríkur segir að kveikjan að verkefninu hafi verið vinna við uppbyggingu gagnasafna fyrir íslenska máltækni.

„Trjábanki er ein grundvallarforsenda þess að hægt sé að koma upp góðum máltæknibúnaði fyrir íslensku. Trjábankinn sameinar viðfangsefni mín í rannsóknum undanfarin þrjátíu ár: annars vegar íslenska setningagerð og breytingar á henni frá fornmáli til nútímans og hins vegar uppbyggingu íslenskrar máltækni.“