Sabit Veselaj, MS frá Viðskiptafræðideild
Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna hversu vel pólskum innflytjendum hefur tekist að aðlagast íslensku samfélagi og greina þætti sem hafa áhrif á aðlögun þeirra. Rannsókninni var enn fremur ætlað að kanna hvað hvatti pólska innflytjendur til að yfirgefa heimaland sitt og velja Ísland sem áfangastað,“ segir Sabit Veselaj, sem lauk í fyrra meistaraprófi í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum. Þar rannsakaði hann menningarlega aðlögun pólskra innflytjenda á Íslandi.
Erlendum ríkisborgurum sem hingað koma til að vinna hefur fjölgað mjög á síðustu 15 árum. Pólverjar eru langstærsti hópurinn. Þeir voru 765 árið 1996 en voru orðnir rúmlega níu þúsund árið 2011.
Sabit Veselaj
Erlendum ríkisborgurum sem hingað koma til að vinna hefur fjölgað mjög á síðustu 15 árum. Pólverjar eru langstærsti hópurinn. Þeir voru 765 árið 1996 en voru orðnir rúmlega níu þúsund árið 2011.

Spurningalisti var lagður fyrir Pólverja á Íslandi á aldrinum 17 til 65 ára og náðust svör frá 236 manns. „Rannsóknin leiddi í ljós að færni í tungumálinu hefur mest áhrif á menningarlega aðlögun Pólverja á Íslandi en íslenskukunnátta þeirra var almennt fremur takmörkuð,“ segir Sabit.
Rannsóknin sýndi einnig að tekjumöguleikar voru helsti hvatinn að því að Pólverjar yfirgáfu heimaland sitt og héldu til Íslands. „Fyrir utan aukna tekjumöguleika voru góð lífsskilyrði, fjölskylda, góðir atvinnumöguleikar og lítið atvinnuleysi helstu ástæður þess að Ísland varð fyrir valinu,“ bendir Sabit enn fremur á.
Hann segir rannsóknina mikilvægt framlag til þekkingar á málefnum innflytjenda og menningarlegri aðlögun þeirra. „Með því að greina þætti sem hindra menningarlega aðlögun geta niðurstöður rannsóknarinnar komið að notum fyrir stjórnmálamenn, þá sem fást við stefnumörkun í málefnum innflytjenda og fyrir mannauðsstjóra, sem gætu nýtt þær til að bæta nýtingu á erlendu vinnuafli í starfseminni. Síðast en ekki síst gagnast niðurstöður rannsóknarinnar innflytjendunum sjálfum við að undirbúa sig fyrir aðlögun að nýrri menningu og til að ná áframhaldandi árangri í íslensku umhverfi,“ segir Sabit.
Leiðbeinandi: Gunnar Óskarsson, aðjunkt við Viðskiptafræðideild.