Skip to main content

Kossar, klapp og kinnhestar - Alls konar snerting í íslenskum heimildum á 19. og 20. öld

Kossar, klapp og kinnhestar - Alls konar snerting í íslenskum heimildum á 19. og 20. öld - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
24. mars 2026 16:00 til 17:00
Hvar 

Árnagarður

Stofa 304

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Ragnhildur Björt Björnsdóttir, meistaranemi í sagnfræði við Háskóla Íslands, heldur erindi í Málstofu í félags- og hagsögu sem nefnist Kossar, klapp og kinnhestar - Alls konar snerting í íslenskum heimildum á 19. og 20. öld. Málstofan verður haldin í stofu 304 í Árnagarði, þriðjudaginn 24. mars kl. 16-17. 

Um fyrirlesturinn

Kossar, klapp og kinnhestar – allt eru þetta form snertingar sem koma fyrir í íslenskum heimildum frá nítjándu og tuttugustu öld. Á meðan að minningar um kossa og klapp eru upp til hópa jákvæðar eru minningar um kinnhesta og aðra líkamlega refsingu, eins og gefur að skilja, frekar neikvæðar. Í lýsingum einstaklinga á þessum ólíku snertingarformum og almennum umræðum í blöðum og tímaritum um líkamlegar refsingar og blíðuatlot er hægt að greina þróun á viðhorfi samfélagsins til ýmissa venja varðandi snertingu, þá aðallega manna í millum. Í þessu erindi verður þessi þróun greind út frá frásögnum í sjálfsbókmenntum og spurningalistum Þjóðháttasafns og þær lýsingar sem þar koma fram settar í samhengi við breyttar hugmyndir samfélagsins um hvað þætti eðlileg snerting og hvað ekki.

Um fyrirlesarann  

Ragnhildur Björt er meistaranemi í sagnfræði við Háskóla Íslands. Í BA-ritgerð sinni fjallaði hún um lykt í íslenskum heimildum á 19. og 20. öld en nú hyggst hún halda fyrir nefið og þreifa sig áfram í heimildunum. 

Ragnhildur Björt Björnsdóttir.

Kossar, klapp og kinnhestar - Alls konar snerting í íslenskum heimildum á 19. og 20. öld