Skip to main content
26. maí 2025

Ráðstefna um Japansrannsóknir haldin í fyrsta skipti við HÍ

Ráðstefna um Japansrannsóknir haldin í fyrsta skipti við HÍ - á vefsíðu Háskóla Íslands

Nítjánda ráðstefna Norrænu samtakanna um Japansrannsóknir (NAJS) fór fram við Háskóla Íslands dagana 22.–23. maí 2025. Á ráðstefnunni komu saman 33 fræðimenn frá 30 háskólum og rannsóknarstofnunum í 15 löndum til að ræða um rannsóknir sínar. Ráðstefnan ferðast á milli Norðurlandanna, en hún var nú haldin á Íslandi í fyrsta sinn. Toshiba International Foundation var aðalstyrktaraðili ráðstefnunnar.

Á ráðstefnunni var fjallað um fjölbreytt efni, þar á meðal innflytjendamál, byggðaþróun, utanríkisstefnu og nýjustu strauma í japanskri menningu. Pekka Korhonen, prófessor emeritus í alþjóðastjórnmálum við Háskólann í Jyväskylä í Finnlandi hélt aðalfyrirlestur ráðstefnunnar. Fyrirlesturinn bar heitið “On Being an Ally of the United States in Cold War II” og fjallaði um stöðu Japans og Suður-Kóreu í alþjóðakerfinu. Fyrirlesturinn var opinn almenningi. Þátttakendur ráðstefnunnar heimsóttu einnig sýninguna um Vigdísi Finnbogadóttur í Loftskeytastöðinni.

Ráðstefnan var skipulögð af Kristínu Ingvarsdóttur, lektor í japönskum fræðum við Háskóla Íslands, í nánu samstarfi við stjórn NAJS, en hana skipa: Bart Gaens (Alþjóðamálastofnun Finnlands), Dick Stegewerns (Háskólinn í Ósló), Jens Sejrup (Háskólinn í Kaupmannahöfn) og Patrik Ström (Stockholm School of Economics).

Ráðstefnan fór fram í Veröld – húsi Vigdísar, sem hýsir Mála- og menningardeild Háskóla Íslands. Deildin hefur boðið upp á grunnnám í japönskum fræðum frá árinu 2003.

Frekari upplýsingar um ráðstefnuna má finna á vefsíðu hennar, najs2025.hi.is.

+2