Skip to main content
15. maí 2025

Háskóli Íslands – undirstaða samfélags og framfara

Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands á ársfundi HÍ 14. maí 2025

Ársfundur Háskóla Íslands fór fram í í Hátíðasal skólans í gær undir yfirskriftinni „Háskóli Íslands – undirstaða samfélags og framfara“ og var fundurinn vel sóttur auk þess að vera í beinu streymi.

Í upphafi fundarins flutti Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, ávarp og fjallaði m.a. um stöðu og mikilvægi Háskóla Íslands sem stærstu og öflugustu mennta- og vísindastofnun landins.

Þá fór rektor yfir starf og stefnu Hákskóla Íslands, helstu kennitölur og lykilmælikvarða um starfsemina og ársreikning skólans.

Helstu breytingar í rekstri skólans frá fyrra ári voru þær að birtingum vísindamanna skólans í viðurkenndum alþjóðlegum vísindatímaritum fjölgaði úr 1.443 í 1.505 sem endurspeglar aukinn þrótt í rannsóknum. Rannsóknastyrkir til skólans hækkuðu úr 6,7 milljörðum króna í 7,1 milljarð sem ber skýran vott um þá miklu grósku sem einkennir rannsóknastarf skólans. Þá hélt Háskóli Íslands á árinu 2024 stöðu sinni í öðru sæti yfir þær stofnanir sem njóta mests trausts meðal þjóðarinnar skv. árlegri mælingu Gallup.

Nýsköpunarstarf Háskóla Íslands hefur aldrei verið öflugra en núna og kemur það m.a. fram í því að umsóknum um einkaleyfi fjölgaði úr þremur í 14 á milli ára. Þá á Háskóli Íslands nú eignarhluti í 22 sprotafyrirtækjum.

Námsánægja nemenda jókst lítillega og er nú 77% sem er hátt hlutfall í alþjóðlegum samanburði og endurspeglar aukna áherslu skólans á þjónustu við nemendur og gæði náms og kennslu.

Tekjur skólans á árinu 2024 fóru úr röskum 35 milljörðum króna í tæpa 37 milljarða. Þar af er sjálfsaflafé HÍ 12,5 milljarðar króna. Eigið fé skólans hækkaði um 1,4 milljarða króna.

Stórsókn á sviði upplýsingatækni

Á ársfundinum voru veitt árleg verðlaun skólans fyrir frumkvæði og forystu en þau eru ætluð hópi eða teymi sem hefur sýnt sérstakt frumkvæði og forystu við þróun og uppbyggingu framúrskarandi starfs innan Háskóla Íslands.

Að þessu sinni voru verðlaunin veitt stórum hópi starfsfólks HÍ sem lagt hefur mikið af mörkum til þróunar og innleiðingar upplýsingatækni í háskólastarfinu. Sérstök áhersla er lögð á hagnýtingu upplýsingatækni í stefnu skólans, en óhætt er að segja að upplýsingatæknibyltingin hafi í sívaxandi mæli áhrif á nær alla þætti starfseminnar.

Í rökstuðningi sínum sagði Jón Atli Benendiktsson, rektor HÍ, að þessari þróun væri hvergi nærri lokið. „Fyrir liggur að gervigreind og upplýsingatækni munu halda áfram að þróast hratt á næstu árum og er því afar mikilvægt að þekkingardrifnar stofnanir á borð við Háskóla Íslands fylgist vel með og tileinki sér þessa tækni til að gera góðan háskóla enn betri, samfélaginu og atvinnulífinu til heilla.“

Rektor HÍ sagði að með verðlaununum væri undirstrikað að alla daga væri unnið gríðarlega fjölbreytt og mikilvægt starf innan Háskóla Íslands – starf sem njóti trausts og verðskuldaðrar viðurkenningar, hvort sem er á sviði náms og kennslu, rannsókna og nýsköpunar, alþjóðastarfs, samfélagsþátttöku eða frumkvæðis nemenda, svo dæmi séu tekin.“

Verðlaunahafar eru ár hvert valdir í sameiningu af rektor og forsetum allra fimm fræðasviða HÍ. Verðlaunin voru veitt í sjöunda sinn í gær, en í fyrra féllu þau í hlut hóps vísindamanna fyrir framúrskarandi árangur í rannsóknum og öflun alþjóðlegra ERC-rannsóknastyrkja í mikilli samkeppni.

Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands á ársfundi háskólans 14. maí 2025
Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra
Silja Bára R. Ómarsdóttir, verðandi rektor Háskóla Íslands á ársfundi háskólans 14. maí 2025
Handhafar verðlauna Háskóla Íslands fyrir frumkvæði og forystu á ársfundi háskólans, ásamt Jóni Atla Benediktssyni rektor og Ingibjörgu Gunnarsdóttur aðstoðarrektor vísinda og samfélags
+3

Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands á ársfundi háskólans 14. maí 2025