Skip to main content

Hugmynda- og vísindasaga sem kennslugrein í framhaldsskóla

Hugmynda- og vísindasaga sem kennslugrein í framhaldsskóla - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
20. mars 2025 16:00 til 17:00
Hvar 

Árnagarður

Stofa 301

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Gunnar Marel Hinriksson flytur erindi í málstofu Sagnfræðistofnunar í hugmynda- og vísindasögu sem hann nefnir „Hugmynda- og vísindasaga sem kennslugrein í framhaldsskóla. Dæmi frá stúdentsbrautinni K2 í Tækniskólanum.“

Haldið í stofu 301 í Árnagarði, fimmtudaginn 20. mars kl. 16:00-17:00.  

Um fyrirlesturinn

Á síðustu árum hafa verið miklar umræður um stöðu sögukennslu í framhaldsskólum, t.d. á málþingi á vegum Sagnfræðingafélags Íslands í febrúar 2023. Í erindinu verður þeirri umræðu haldið áfram en athyglinni beint að því hvernig við getum gert sögu aðgengilega og áhugaverða fyrir nemendur með aðferðum hugmyndasögunnar. Kynnt verður dæmi um hvernig sögukennslu er háttað á stúdentsbrautinni K2 tækni- og vísindaleið í Tækniskólanum þar sem áhrif hugmynda, vísinda og tækni á mannkynssöguna eru rannsökuð í verkefnamiðuðu námi. Einnig verður efnið sett í samhengi við umræðu sem hefur átt sér stað um tilgang sögukennslu á tímum internetsins með stöðugan aðgang að öllum heimsins staðreyndum og það sem hefur verið kallað í kennslufræðinni söguleg hugsun og rökfærsla.

Gunnar Marel Hinriksson flytur erindi í málstofu Sagnfræðistofnunar í hugmynda- og vísindasögu.

Hugmynda- og vísindasaga sem kennslugrein í framhaldsskóla