Hvað sefur í djúpinu?

Edda
Um að fara undir viðtekið yfirborð og reyna að finna hvað leynist þar undir.
Ingunn Ásdísardóttir þjóðfræðingur fjallar um jötna og aðrar vættir í tengslum við handritasýninguna Heimur í orðum.
Goðakvæði eddukvæða eru vissulega mörkuð af hinu ríkjandi sjónarhorni „við og hinir“, „vinir og fjendur“, „góðir og vondir“, „æsir og jötnar“.
Hluta af þessu viðhorfi má að öllum líkindum kenna Snorra Sturlusyni og endursögnum hans á þessum kvæðum í ritum sínum, en þó er líklegt að ýmsar samfélagsbreytingar á norrænum svæðum hafi átt sinn hlut að máli; strax um mitt fyrsta árþúsundið var kristnin farin að berast til Norðurlanda og henni fylgdu viðhorfsbreytingar af margvíslegu tagi sem væntanlega hafa sett mark sitt á sagnaefni ekki síður en átrúnað
Fornnorrænt sagnaefni sem varðveist hefur í kvæðum virðist þó, þegar grannt er skoðað, hafa að geyma alls kyns leifar um enn eldri hugmyndir, þar með talið um jötna hins norræna goðheims, og benda þær til að þeir hafi ekki verið eins afgerandi óvinir ása og manna og lengst af hefur verið talið.
Með því að reyna að kafa undir yfirborð kvæðanna og tína upp allt það sem viðkemur jötnum og jötunkonum og skoða út frá eins hlutlausu sjónarhorni og framast er unnt virðist glitta í enn eldri átrúnað en hina svokölluðu ásatrú þar sem jötnar gegna mikilvægu og flóknu hlutverki sem er einhvers konar „fúndament“ forsögulegs átrúnaðar.
Ingunn fékk Fjöruverðlaunin í ár fyrir bók sína Jötnar hundvísir. Norrænar goðsagnir í nýju ljósi.
Ingunn Ásdísardóttir þjóðfræðingur fjallar um jötna og aðrar vættir í tengslum við handritasýninguna Heimur í orðum.
