Skip to main content

Sæmundarstund 2025

Sæmundarstund 2025 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
20. mars 2025 13:00 til 13:30
Hvar 

Styttan af Sæmundi fróða við Aðalbyggingu

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Þrettánda árlega Sæmundarstund fer fram fimmtudaginn 20. mars kl. 13.00 til 13.30, við styttuna af Sæmundi fróða í skeifunni við Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Að viðburðinum standa Oddafélagið, Stúdentaráð og skrifstofa rektors Háskóla Íslands.

Sæmundarstund var fyrst haldin á aldarafmæli Háskóla Íslands árið 2011 að frumkvæði Oddafélagsins, sem er félag áhugamanna um endurreisn fræðaseturs að Odda á Rangárvöllum þar sem Sæmundur fróði bjó. Stundin hefur verið haldin árlega síðan, jafnan á degi sem næst vorjafndægri.

Þar er lærdómsmannsins og þjóðsagnapersónunnar Sæmundar fróða Sigfússonar minnst en hann var uppi á 11. og 12. öld. Sæmundur fór utan til náms og nam m.a. við skóla í Evrópu áður en hann sneri aftur til Íslands og gerðist prestur að Odda á Rangárvöllum.

Líkt og fyrri ár fer Sæmundarstund fram við styttuna af Sæmundi á selnum, sem stendur í Skeifunni fyrir framan Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Styttuna gerði Ásmundur Sveinsson og vísar hún til frægrar þjóðsögu af viðureign Sæmundar við kölska en samkvæmt þjóðsögunni flutti hann Sæmund heim til Íslands í selslíki.

Viðri illa, færist Sæmundarstund inn í anddyri Aðalbyggingar.

Dagskrá
Kl. 13:00 – 13:30
1. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, flytur ávarp.
2. Þór Jakobsson, fyrrverandi formaður Oddafélagsins, greinir í örfáum orðum frá sögu og tilgangi Sæmundarstundar.
3. „Kór Sæmundarstundar“. Börn í Leikskólanum Mánagarði syngja tvö lög.
4. Katrín Jakobsdóttir, fyrrv. forsætisráðherra, flytur ávarp.
5. Arent Orri J. Claessen, forseti Stúdentaráðs, flytur ávarp.
6. Börnin í Mánagarði syngja eitt eða tvö lög.
7. Sæmundarstund slitið.

Þrettánda árlega Sæmundarstund fer fram fimmtudaginn 20. mars kl. 13.00 til 13.30, við styttuna af Sæmundi fróða í skeifunni við Aðalbyggingu Háskóla Íslands. Að viðburðinum standa Oddafélagið, Stúdentaráð og skrifstofa rektors Háskóla Íslands.

Sæmundarstund 2025