Skip to main content

Bækur og brjáluð fræði

Bækur og brjáluð fræði - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
1. mars 2025 16:00 til 17:30
Hvar 

Norræna húsið

Nánar 
Aðgangur ókeypis

„Við sem komum fram á málþinginu Bækur og Brjáluð fræði erum öll með persónulega reynslu af því að fá greiningu og þjónustu í geðheilbrigðiskerfinu. Við eigum það sameiginlegt að hafa skrifað, rannsakað og gefið út efni, bæði tengt geðheilbrigðismálum og fleiri áhugasviðum okkar. Með því að taka þátt í málþinginu viljum við bæði vekja áherslu á Brjáluðum fræðum (e. Mad studies) og mikilvægi þess að raddir fólks með okkar reynslu heyrist.“

Málþingið er haldið í samstarfi við Uppskeru, Hugarafl, Norræna húsið og námsbraut í fötlunarfræði við Háskóla Íslands.

DAGSKRÁ:

Sjónarhorn gagnrýninnar kenningar á innleiðingu jafningjastuðnings og batamiðaðrar hugmyndafræði
Nína Eck, félagsráðgjafi, teymisstjóri jafningja á LSH og jafningjaþjálfari.

Brjáluð fræði og rannsókn um bækur
Gunnhildur Una Jónsdóttir, meistaranemi í fötlunarfræðum

Boðaföll: Nýjar nálganir í sjálfsvígsforvörnum
Fanney Björk Ingólfsdóttir, meistaranemi í ritlist

Úr hæstu hæðum niður í dýpstu djúp: Um uppsprettur Lífið er staður þar sem bannað er að lifa og Hreinsunareldur
Steindór J Erlingsson, vísindasagnfræðingur

Viðburðurinn er haldinn í tengslum við menningarhátíðina Uppskeru sem fram fer í Reykjavík dagana 8. febrúar til 8. mars 2025. Tilefni hátíðarinnar er 20 ára afmæli fötlunarfræða við Háskóla Íslands. Hátíðinni er ætlað að vekja athygli á framlagi fræðafólks, samtaka fatlaðs fólks og fatlaðs listafólks til íslenskrar menningar.

Lykilviðburðir hátíðarinnar verða tveir, málþing í Háskóla Íslands 21. febrúar og menningarhátíð í Hörpu 22. febrúar. Auk þess verða viðburðir víðs vegar um borgina þar sem gestum gefst tækifæri á að njóta listsköpunar fatlaðs fólks. Í boði verður myndlistasýning, kvikmyndasýning, bókmenntakvöld, gjörningakvöld, ljóðakvöld, smiðjur auk viðburða á söfnum borgarinnar.

Dagskráin verður aðgengileg á auðlesnu máli og allir viðburðir táknmálstúlkaðir. Í Hörpu verður rittúlkun á ensku og sjónlýsing á íslensku og ensku. Hátíðin er öllum opin að kostnaðarlausu.
Verið öll velkomin á Uppskeru!
hi.is/uppskera

Málþingið er haldið í samstarfi við Uppskeru, Hugarafl, Norræna húsið og námsbraut í fötlunarfræði við Háskóla Íslands.

Bækur og brjáluð fræði