Upphaf stéttskiptingar á Íslandi

Árnagarður
Stofu 304
Axel Kristinsson, sjálfstætt starfandi sagnfræðingur, heldur erindi í Málstofu í félags- og hagsögu sem nefnist: Upphaf stéttskiptingar á Íslandi.
Málstofan er í stofu 304 í Árnagarði, þriðjudaginn 25. febrúar kl. 16:00-17:00. Verið öll velkomin.
Um erindið:
Í anda þjóðernisrómantíkur hefur Íslandi stundum verið lýst sem stéttlausu samfélagi en ljóst er að það á ekki við rök að styðjast, megnið af Íslandssögunni. Hins vegar höfum við takmarkaðar upplýsingar um samfélagsgerð fyrr en kemur fram á 12. öld þannig að mögulegt er að fyrir þann tíma hafi stéttskipting verið lítil eða engin. Í erindinu verður fjallað um tvær spurningar sem þessu tengjast: var Ísland stéttlaust fyrst eftir landnám og, ef svo var, hvers vegna breyttist það.
Axel Kristinsson.
