Skip to main content

Málþing til heiðurs Sigurveigu H. Sigurðardóttur

Málþing til heiðurs Sigurveigu H. Sigurðardóttur - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
17. janúar 2025 14:00 til 16:00
Hvar 

Háskólatorg

HT-103

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Félagsráðgjafinn og prófessorinn Sigurveig Huld Sigurðardóttir varð prófessor emerita í tilefni starfsloka við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, þann 30. september á liðnu ári. Af tilefni þessara tímamóta verður efnt til málþings henni til heiðurs föstudaginn 17. janúar kl. 14:00-16:00 á Háskólatorgi 103. Að málþinginu standa Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands og Öldrunarfræðafélag Íslands. Málþingið er öllum opið. Dagskrá verður auglýst nánar þegar nær dregur en flutt verða nokkur erindi til heiðurs Sigurveigu og boðið upp á léttar veitingar í lok dagskrár.

Dagskrá:

Setning: Hervör Alma Árnadóttir, dósent og deildarforseti við Félagsráðgjafardeild Hí

Opnunarávarp og kveðja frá Háskóla Íslands: Jón Atli Benediktsson, Rektor Háskóla Íslands

Kveðja frá Félagsvísindasviði: Stefán Hrafn Jónsson, sviðsforseti Félagsvísindasviðs HÍ

Brautryðjandi á sviði öldrunarfræða í félagsráðgjöf: Sigrún Júlíusdóttir, prófessor emerita í félagsráðgjöf

Félagsráðgjafinn í teymi öldrunarlækninga: Jón Snædal og Jón Eyjólfur Jónsson, Öldrunarlæknar

Kveðja frá Rauða krossinum á Íslandi: Silja Bára Ómarsdóttir, formaður RKÍ og prófessor í stjórnmálafræði við HÍ

Fræðikonan og rannsakandinn: Halldór S. Guðmundsson, dósent og vara-deildarforseti Félagsráðgjafardeildar HÍ

Fjölskyldukveðja: Hjörtur Fr. Hjartarson, forstöðulæknir skurðlækninga LSH

Litið yfir farinn veg: Sigurveig H. Sigurðardóttir, prófessor emerita í félagsráðgjöf

Slit málþings og léttar veitingar

Sigurveig Huld Sigurðardóttir varð prófessor emerita í tilefni starfsloka við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, þann 30. september á liðnu ári.

Málþing til heiðurs Sigurveigu H. Sigurðardóttur