Málþing meistaranema á Menntavísindasviði

Stakkahlíð / Háteigsvegur
Klettur
Málþing meistaranema á Menntavísindasviði verður haldið fimmtudaginn 9. janúar 2025 í Stakkahlíð.
Málþingið er haldið í janúar, maí og október ár hvert, þar sem meistaranemar kynna lokaverkefni sín. Nú er komið að meistaranemum sem brautskrást 21.febrúar 2025 að kynna sín verkefni.
Málþingið fer fram á 2. hæð í Kletti og hefst með ávarpi Kolbrúnar Þ. Pálsdóttur, Sviðsforseta Menntavísindasviðs kl. 13:00.
Kynningar á meistaraverkefnum verða frá kl. 13:15 - 15.15 í stofu K-206
Nánari upplýsingar um málþingið má einnig finna á Facebook.
Við bendum einnig á heimasíðuna sem hýsir dagskrá og ágripin Forsíða - Málþing meistaranema MVS (hi.is).
Málþingið er öllum opið – vinir, ættingjar og samstarfsfólk er velkomið!
Kynningar á meistaraverkefnum verða frá kl. 13:15 - 15.15 í stofu K-206 í Stakkahlíð.
