Skip to main content

20 ára afmæli Jules Verne samstarfsins

20 ára afmæli Jules Verne samstarfsins - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
31. október 2024 16:45 til 17:45
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Auðarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Franska sendiráðið og Rannís bjóða til viðburðar í tilefni af 20 ára afmæli Jules Verne samstarfsins.

Um þessar mundir eru liðin 20 ár frá því að Ísland og Frakkland stofnuðu til Jules Verne samstarfsins á sviði vísinda og tækni. Markmið samstarfsins hefur undanfarna tvo áratugi verið að virkja vísinda- og tæknisamstarf milli stofnana, skóla og rannsóknahópa í báðum löndum og að auðvelda samstarf við önnur samstarfsverkefni í Evrópu.

í tilefni af 20 ára afmæli samstarfsins bjóða Rannís og franska sendiráðið til viðburðar í Veröld - húsi Vigdísar, fimmtudaginn 31. október  kl. 16:45.

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin en óskað er eftir að gestir skrái sig á viðburðinn.

Skráning á viðburðinn

Dagskrá
16:45 Ávarp og nokkur orð um samstarfið

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands
Aðalheiður Jónsdóttir, aðstoðarforstöðumaður Rannís
Guillaume Bazard, sendiherra Frakklands á Íslandi

17:00 Pallborðsumræður um ávinninginn af samstarfinu. Sigurður Óli Sigurðsson, sviðstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs Rannís, leiðir umræðurnar.

Þátttakendur:

Jón Atli Benediktsson, Háskóla Íslands
Paolo Gargiulo, Háskólinn í Reykjavík
Filipa Samarra, Háskóli Íslands

17:45 Móttaka - Léttar veitingar

Franska sendiráðið og Rannís bjóða til viðburðar í tilefni af 20 ára afmæli Jules Verne samstarfsins.

20 ára afmæli Jules Verne samstarfsins