Annars hugar: Karítas Hrundar Pálsdóttir
Edda
Fyrirlestrasalur
Karítas Hrundar Pálsdóttir flytur opinn fyrirlestur um tungumálanám og ritlist, auk þess að segja frá eigin skrifum. Haldið í fyrirlestrasal Eddu, miðvikudaginn 6. nóvember kl. 12:00-13:00. Verið öll velkomin!
Karítas Hrundar Pálsdóttir er höfundur bókanna Árstíðir og Dagatal sem innihalda sögur á einföldu máli. Karítas er fyrsti Íslendingurinn sem er með doktorspróf í ritlist en hún lærði við University of East Anglia í Englandi.
Fyrirlesturinn er haldinn í fyrirlestraröðinni „Annars hugar“ sem haldin er á vegum námsgreinarinnar Íslenska sem annað mál í samstarfi við Árnastofnun og Málvísindastofnun Háskóla Íslands. Annars hugar er fyrirlestraröð fyrir öll sem tala íslensku, töluðu íslensku eða vilja tala íslensku. Það er ekkert mál að eiga íslensku sem annað mál.
Karítas Hrundar Pálsdóttir.