Skírnarguðfræði Lúthers og lúthersk skírnarguðfræði á Íslandi
Aðalbygging
Stofa 229
Ólafur Jón Magnússon, prestur í Sænsku kirkjunni, kynnir niðurstöður MA-verkefnis síns við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild HÍ, sem ber yfirskriftina: „Engin stórkostlegri huggun á jörðu“: Skírnarguðfræði Lúthers og lúthersk skírnarguðfræði íslenskra helgisiðabóka.
Haldið í stofu 229 í Aðalbyggingu Háskóla Íslands mánudaginn 4. nóvember kl. 12:00–13:00.
Í fyrirlestrinum kynnir Ólafur Jón skírnarguðfræði Marteins Lúther, eins og hún er sett fram í átta ritum sem spanna allan feril siðbótarmannsins. Skírnarguðfræði Lúthers er síðan borin saman við þá skírnarguðfræði sem birtist í skírnaratferli helstu helgisiðabóka lúthersku kirkjunnar á Íslandi, frá handbók biskups Marteins Einarssonar 1555 til núgildandi handbókar frá 1981.
Aðalbygging HÍ.