Skip to main content

Áfangamat: Þorsteinn Árnason Sürmeli

Áfangamat: Þorsteinn Árnason Sürmeli  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
22. október 2024 13:00 til 14:00
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

Stofa K-103

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Í krafti smæðar: Samstarf kennara og áhrif skólamenningar í óvæntum aðstæðum framhaldsskóla.

Rannsóknin skoðar hvernig félagsauður kennara, fagleg samstarfskennd þeirra og skólamenning birtist í þremur íslenskum framhaldsskólum þegar takmarkanir vegna COVID-19 heimsfaraldursins voru í gildi.

Matið er í tvennu lagi; fyrst kynnir Þorsteinn rannsóknarskýrslu sína kl. 13–14 í stofu K-103 í Stakkahlíð og er sú kynning opin nemum í framhaldsnámi og starfsfólki Menntavísindasviðs. Hægt er að fylgjast með á Zoom: https://eu01web.zoom.us/j/66135682347    

Síðan er fundur þar sem matsnefnd fær tækifæri til að ræða rannsóknarskýrsluna. Fundurinn er öðrum lokaður. Tilgangur matsins er tvíþættur eins og fram kemur í Reglum um doktorsnám við Mennta­vísinda­svið: Að meta hæfni doktorsnemans til að framkvæma rannsóknarverkefni sitt og að veita endurgjöf svo að verkefnið verði svo gott sem verða má.

Prófdómarar eru dr. Geert Kelchtemans prófessor við Centre for Innovation and the Development of Teacher and School, Leuven, Belgíu og dr. Berglind Rós Magnúsdóttir prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.  Aðalleiðbeinandi er dr. Guðrún Ragnarsdóttir prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, meðleiðbeinandi dr Súsanna Margrét Gestsdóttir lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Dr. Annadís Greta Rúdólfsdóttir prófessor við Menntavísindasvið er formaður matsnefndar og stýrir athöfninni og Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir er ritari.