Skip to main content

Pólland: Sumar

Pólland: Sumar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
21. september 2024 10:30 til 11:30
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Mariola Alicja Fiema, aðjunkt í pólskum fræðum við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands, flytur fyrsta erindið í fyrirlestraröðinni Pólland: Vetur, sumar, vor og haust. Í fyrsta erindinu verður fjallað um pólskt sumar.

Haldið í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins, laugardaginn 21. september kl. 10:30. Verið öll velkomin.

Í fyrirlestraröðinni verður fjallað um allt það sem Pólland hefur að bjóða fólki sem leitar að spennandi og fjölbreyttum áfangastað. Pólskar borgar eru þekktar fyrir skemmtilegt mannlíf og fjölbreytt menningarlíf, þar eru söguleg kennileiti á nánast hverju götuhorni, söfn og gallerí. En Pólland dregur líka að náttúruunnendur og útivistarfólk. Vetrarfegurðin heillar skíðafólk hvaðanæva úr heiminum og sandstrendur Eystrasaltsins sólarunnendur. Hlýir litir skóganna umlykja göngufólk að hausti og hjólreiðafólk nýtur útivistar í blómstrandi aldingörðum að vori. Tilvalið tækifæri til að kynnast pólskri menningu.

Dagskrá:

Pólland, sumarið: 21. september 2024, kl. 10:30.
Pólland, haustið: 23. nóvember 2024, kl. 10:30.
Pólland, veturinn: 18. janúar 2025, kl. 10:30.
Pólland, vorið, 15. mars 2025, kl. 10:30.

Mariola Alicja Fiema, aðjunkt í pólskum fræðum við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands.

Pólland: Sumar