Forvarnir og fræðsla um kynferðisofbeldi
Stakkahlíð / Háteigsvegur
K-103 / K-208
Barnaheill bjóða nemendum Háskóla Íslands á námskeið til að efla forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart 5-11 ára börnum.
Fræðslan fer fram þriðjudag 17. sept. kl. 13-15.30 í K-103 & fimmtudag 19. sept. kl. 13-15.30 í K-208 - skráning hér Nauðsynlegt er að mæta báða dagana.
Einnig býður Barnaheill upp á fjarnámskeið miðvikudaginn 2. okt. kl. 13-15.30 & fimmtudag 3. okt. kl. 13-15.30 - skráning hér - Nauðsynlegt er að mæta báða dagana.
„Við viljum gera fagfólk sem vinnur með börnum meðvitað og fært um að ræða við börnin og styðja þau í að
öðlast skilning, færni og þekkingu á líkama sínum, tilfinningum, mörkum og samþykki."
Ítarlegt kennsluefni með gagnreyndri kynfræðslu og viðaukum (leikir, verkefni, þrautir) verður aðgengilegt eftir námskeiðið.
Í efninu sem notað er við fræðsluna eru fimm námsþættir
- „Hvað veistu um réttinn til kynheilbrigðis?“
- „Mannslíkaminn“
- „Tilfinningagreind og samskiptahæfni“
- „Mörk og samþykki“
- „Að vernda börn gegn kynferðislegri misnotkun“
Þátttakendur fá skjal sem staðfestir þátttöku í námskeiðinu, styrktu af Evrópusamstarfinu. CSAPE (Child Sexual Abuse Prevention and Education) 2022–2024 er samstarfsverkefni Finnlands, Íslands, Grikklands, Albaníu og Bosnía-Hersegóvínu og fjármagnað af Evrópusambandinu.