Skip to main content

Miðbiksmat í eðlisfræði - Matthias Harksen

Miðbiksmat í eðlisfræði - Matthias Harksen - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
10. október 2024 8:00 til 10:00
Hvar 

Stapi

Stofa 108

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Heiti verkefnis: Óafstæðilegar samhverfur svarthola

Nemandi: Matthias Harksen

Doktorsnefnd:
Dr. Lárus Thorlacius, prófessor við Háskóla Íslands, Dr. Zhao-He Watse Sybesma, lektor við Norditu & Stokkhólmsháskóla, Svíþjóð, Dr. Valentina Giangreco, prófessor við Háskóla Íslands, Dr. Friðrik Freyr Gautason, lektor við Southampton-háskóla, Bretlandi, Dr. Niels Obers, prófessor við Kaupmannahafnarháskóla í Danmörku.

Ágrip
Í þessu erindi mun ég kynna rannsóknarniðurstöður mínar síðastliðin tvö ár. Meginþráðurinn er að skoða hvað gerist þegar að við víkjum frá hefðbundnum afstæðilegum samhverfum. Í fyrri greininni skoðum við svokallað Carroll-markgildi af hefðbundinni strengjafræði. Carroll- strengurinn lýsir hegðun strengja í grennd við sjóndeild svarthols og veitir möguleikan á (ör- lítilli) hreyfingu í rúmlæga stefnu ólíkt flestum öðrum Carroll kenningum. Í síðari greininni skoðum við svarthol með Lifshitz-samhverfur þar sem að tími og rúm hegða sér með mis- lægum hætti. Við sýnum að lýsa megi meginhegðun svartholsins með tvívíðu þinilsviðslíkani sem hegðar sér eins og afmynduð Schwarzverkun á jaðri tímarúmsins. Við beitum jaðarken- ningunni til þess að reikna skammtafræðilegan leiðréttingarlið við óreiðu svartholsins.