Skip to main content
27. ágúst 2024

Viltu vinna bug á köngulóafælni?

Viltu vinna bug á köngulóafælni? - á vefsíðu Háskóla Íslands

Sálfræðiráðgjöf háskólanema, sem veitir stúdentum HÍ og börnum þeirra aðstoð við ýmiss konar sálfræðilegum vanda, leitar að einstaklingum sem vilja vinna bug á köngulóarfælni. Meðferðin fer fram á háskólasvæðinu.

Ráðgjöfin hefur verið starfrækt í mörg ár og veitir háskólanemum og börnum þeirra aðstoð við vægari vanda eins og þunglyndi, félagskvíða og öðrum kvíða, átraskanir og þráhyggjuvanda. Þjónustuna veita meistaranemar í sálfræði en öll meðferð fer fram undir handleiðslu Þórðar Arnar Arnarsonar, sálfræðings og forstöðumanns Sálfræðiráðgjafar háskólanema, og dr. Dagmarar Kristínar Hannesdóttur, klínísks barnasálfræðings og lektors við Sálfræðideild.

Nú í upphafi haustmisseris verða meistaranemar þjálfaðir í meðferð við einfaldri fælni og verður áherslan á köngulóafælni. Því óskar sálfræðiráðgjöfin sérstaklega eftir nemendum við HÍ eða börnum (8 ára og eldri) nemanda með köngulóafælni. Pláss er fyrir 20 manns í þessa meðferð.

Einkenni köngulóafælni eru:
1. Mikill kvíði eða hræðsla við köngulær 
2. Köngulær vekja oftast samstundis kvíða eða hræðslu
3. Forðast oftast köngulær
4. Kvíðinn eða hræðslan er meiri en köngulær gefa tilefni til
5. Hræðslan hefur verið til staðar í meira en 6 mánuði

Inngripið er því stutt og samanstendur af: 1) u.þ.b. 40 mínútna matsviðtali og 2) meðferð sem stendur í 90-180 mínútur í einni lotu.

Þau sem hafa áhuga geta haft samband við Þórð Örn Arnarson í gegnum netfangið thordura@hi.is.

Sálfræðiráðgjöfin er einnig opin fólki með annan sálrænan vanda eins og lesa má um á vef ráðgjafarinnar. Umsóknir fyrir fullorðna má finna hér og umsóknir fyrir börn má finna hér.
 
 

Nemandi á Háskóaltorgi