Ferðamálastefna, rannsóknir og þróun ferðaþjónustu
Aðalbygging
Hátíðarsalur
Hvert stefnir í ferðamálum og hvaða hlutverki gegna rannsóknir fyrir uppbyggingu á sjálfbærri ferðaþjónustu á Íslandi?
Þetta er meðal spurninga sem fjallað verður um á málþinginu Ferðamálastefna, rannsóknir og þróun ferðaþjónustu.
Ferðamálastefna og aðgerðaáætlun til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi í júní 2024. Á málþinginu mun Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, kynna áherslur stefnunnar og fræðafólk fjalla um rannsóknir á ferðamálum.
Seinni hluti málþingsins er helgaður pallborðsumræðum með þátttöku aðila úr stoðkerfi ferðaþjónustunnar og fræðafólks.
Dagskrá
14:00 – 14:10 Opnunarávarp
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands
14:10 – 14:30 Ferðamálastefna og aðgerðaáætlun til 2030
Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra
14:30 – 14:45 Þjóðhagslíkön fyrir ferðaþjónustu
Marías H. Gestsson, dósent við Hagfræðideild HÍ
Álagsstýring á ferðamannastaði: Hagræn grundvallaratriði
Ragnar Árnason, prófessor emeritus við Hagfræðideild HÍ
14:45 – 15:00 Vistkerfi menningararfs og ferðaþjónustu: Frásagnir og skapandi ferli til eflingar samfélaga og byggða
Katrín Anna Lund, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ
15:00- 15:45 Pallborðsumræður
Arnar Már Ólafsson, ferðamálastjóri
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdarstjóri Íslenska ferðaklasans
Katrín Anna Lund, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ
Ragnar Árnason, prófessor emeritus við Hagfræðideild HÍ
15:45 – 16:00 Samantekt og lokaorð
Magnús Haukur Ásgeirsson, aðjúnkt við Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ
Fundarstjóri málþingsins er Magnús Haukur Ásgeirsson, aðjúnkt við Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ.
Málþingið er skipulagt af námsbraut í ferðamálafræði í samstarfi við Menningar- og viðskiptaráðuneytið.
Hvert stefnir í ferðamálum og hvaða hlutverki gegna rannsóknir fyrir uppbyggingu á sjálfbærri ferðaþjónustu á Íslandi?