Skip to main content

Fræðilegur grunnur þróunar og þroskunar

Fræðilegur grunnur þróunar og þroskunar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
7. ágúst 2024 13:00 til 14:00
Hvar 

Askja

130

Nánar 
Benedikt Hallgrímsson

Benedikt Hallgrímsson prófessor við Háskólann í Calgary mun kynna rannsóknir sínar við Líf- og umhverfisvísindastofnun Háskóla Íslands.

Erindið verður flutt á ensku undir titlinum "The Conceptual Foundation of Evolution and Development".

Benedikt og samstarfsmenn hafa rannsakað formbreytileika í lögun beina og vefja hryggdýra, með höfuðáherslu á höfuð og fæðuöflunarfæri.

Heimasíða rannsóknarhóps Benedikts við Háskólann í Calgary.

Benedikt hefur búið ytra í um 40 ár og telst nú með fremstu vísindamanna Kanada. Hann mun í erindinu fjalla um bók sem hann vinnur að, um það hvernig lífverur eru upp byggðar, áhrifaþætti þroskunar. Efnið verður einnig sett í samhengi við þróun lífvera. 

Dagskrá föstudagsfyrirlestra (þó þessi lendi á miðvikudegi) líffræðistofnunar Háskóla Íslands.

https://luvs.hi.is/is/friday-biology-seminars

Benedikt Hallgrímsson prófessor við Háskólann í Calgary mun kynna rannsóknir sínar við Líf- og umhverfisvísindastofnun Háskóla Íslands.

Fræðilegur grunnur þróunar og þroskunar