Kynningarfundur fyrir nýnema á Hugvísindasviði
![Kynningarfundur fyrir nýnema á Hugvísindasviði - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/kri_oll_fraeknu_herferd_23_221215_010_0.jpg?itok=1usEHwSm)
Hugvísindasvið Háskóla Íslands býður nýnemum á kynningarfund í Auðarsal í Veröld, föstudaginn 16. ágúst kl. 13:00.
Dagskrá:
- Ávarp Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskóla Íslands.
- Kynning á Hugvísindasviði. Ólöf Garðarsdóttir, forseti Hugvísindasviðs.
- Kynning á Uglu – innri vef HÍ.
- Kynning á félagsstarfi nemenda.
Að fundinum loknum verða kynningarfundir í deildum og hefjast þeir kl. 14:00. Þar verður greint frá námstilhögun og veittar nánari upplýsingar um nám og félagsstarf í viðkomandi deildum:
- Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði í Veröld (stofa auglýst síðar).
- Íslensku- og menningardeild í Eddu (stofa auglýst síðar).
- Mála- og menningardeild í Veröld (stofa auglýst síðar).
- Guðfræði- og trúarbragðafræðideild heldur sinn kynningarfund í stofu 229 í Aðalbyggingu.
Kennsla hefst mánudaginn 19. ágúst. Nýnemadagar Háskóla Íslands hefjast 26. ágúst.
Á nýnemavef Háskóla Íslands, vef Stúdentaráðs og á vef Hugvísindasviðs eru gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema um námið og skólann, þar á meðal stundaskrár. Eins er hægt að fá innsýn í starfið á facebooksíðum skólans og sviðsins og á Instagram síðum sviðs og skóla.
Ef einhverjar spurningar vakna um námið er hægt að hafa samband við starfsfólk á skrifstofu í síma 525 4400, senda okkur tölvupóst á netfangið hug@hi.is eða koma við á skrifstofu sviðsins í Aðalbyggingu (3. hæð); hún er opin kl. 10-12 og 13-15 virka daga.