Skip to main content
7. júní 2024

Háskóli unga fólksins fagnar 20 ára afmæli

Háskóli unga fólksins fagnar 20 ára afmæli - á vefsíðu Háskóla Íslands

Orðaleikir og bókmenntir, gervigreind, stjörnufræði, dulkóðun, íþrótta- og heilsufræði, hvalir í sýndarveruleika, blaða- og fréttamennska, japönsk fræði, sjúkraþjálfun og rafmagns- og tölvuverkfræði er meðal þess sem þátttakendur í Háskóla unga fólksins í Háskóla Íslands munu fást við dagana 10.-14. júní. Um 250 krakkar á aldrinum 12-14 ára hafa skráð sig í skólann sem fagnar 20 ára afmæli í ár.

Áhersla hefur verið lögð á það í Háskóla unga fólksins frá upphafi að kynna fróðleiksfúsum krökkum fyrir fjölbreyttum vísindum og fræðum frá óvæntum og skemmtilegum sjónarhornum. Nemendur fást við fjölbreytt verkefni og miðlun vísindanna fer fram á lifandi hátt en kennsla er í höndum bæði nemenda og vísindafólks við Háskóla Íslands.

Að þessu sinni gátu nemendur valið á milli 35 námskeiða í 14 ólíkum stundatöflum. Í þeim er að finna námskeið af öllum fræðasviðum Háskóla Íslands, í félagsvísindum, hugvísindum, menntavísindum, heilbrigðisvísindum, verkfræði, raun- og náttúruvísindum og þverfræðilegum greinum.

Meðal annars er boðið upp á stundatöflu þar sem jafnólík viðfangsefni og lögfræði, heimspekin og manneskjan, efnafræði, sköpun og stafræn tækni, skurðlækningar, ævintýri orðanna og lyfjafræði koma við sögu og aðra þar sem nemendur kynnast tómstunda - og félagsmálafræði, þjóðfræði og skrímslum, kynjafræði, tölvutækni og forritun og geðheilbrigði og tilfinningum. 

Kennsla fer fram kl. 9.00-12.30 alla dagana og aðallega í tveimur byggingum skólans, Öskju og Odda. Nemendur sækja tvö námskeið hvern dag að undanskildum miðvikudeginum 12. júní. Þá verja þeir öllum tímanum í tiltekinni þemagrein, sem er mismunandi eftir stundatöflum, og leggja jafnvel land undir fót. 

Háskóli unga fólksins hefur verið starfræktur í tvo áratugi. Frá upphafi hafa í kringum 10 þúsund krakkar tekið þátt í starfi hans og námskeiðin sem kennd hafa verið eru hátt í tvö þúsund. Þá eru dæmi um að fyrrverandi nemendur í skólanum hafi tekið að sér kennslu síðar á lífsleiðinni. Tuttugu ára afmæli Háskóla unga fólksins verður fagnað með pompi og prakt á lokahátíð í hádeginu föstudaginn 14. júní. Þar verður boðið upp á veglega afmælisköku, grillveislu og uppblásin útileiktæki. 

Hægt verður að fylgjast með skólastarfinu bæði á vefsíðu skólans og Facebook-síðu hans.
 

Frá Háskóla unga fólksin