Hamingjan og tíminn: Hugleiðingar í ljósi kenninga Plótínosar og stóuspeki
![Hamingjan og tíminn: Hugleiðingar í ljósi kenninga Plótínosar og stóuspeki - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/pallskulason.jpg?itok=43BSj4sg)
Aðalbygging
Hátíðasalur
Minningarfyrirlestur Páls Skúlasonar er haldinn ár hvert á vegum Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands í minningu Páls Skúlasonar, rektors og prófessors í heimspeki, sem jafnframt var hvatamaður að því að Siðfræðistofnun var komið á legg og þjónaði sem formaður stjórnar stofnunarinnar fyrstu starfsár hennar. Fyrirlesari að þessu sinni er Eyjólfur Kjalar Emilsson, prófessor í heimspeki við Óslóarháskóla. Fyrirlestur hans ber yfirskriftina Hamingjan og tíminn: Hugleiðingar í ljósi kenninga Plótinosar og stóuspeki.
Stóumenn og Plótinos héldu því fram að hamingjusamur maður verði ekki hamingjusamari með því að halda áfram að vera hamingjusamur. Í lestrinum mun Eyjólfur leitast við að útskýra þessa kenningu og í því sambandi einnig fjalla um svokallaðs stóíska ró og svokallað tilfinningaleysi Stóumanna.
Eyjólfur Kjalar Emilsson er prófessor í heimspeki við Óslóarháskóla. Hann hefur ritað fjölda bóka og greina um fornaldarheimspeki. Þá hafa þýðingar hans á verkum eftir Platón, Plótínos og Ibn Tufail komið út í lærdómsritaröð Hins íslenzka bókmenntafélags.
Staður: Hátíðasalur Háskóla Íslands
Stund: Þriðjudagur 21. maí kl. 16:00
Eyjólfur Kjalar Emilsson er prófessor í heimspeki við Óslóarháskóla
![Hamingjan og tíminn: Hugleiðingar í ljósi kenninga Plótínosar og stóuspeki](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/wwq3v.jpg?itok=JE2l4KIP)