Tímamót - Hylurinn tæmdur
![Tímamót - Hylurinn tæmdur - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/boksasafn_mynd.jpg?itok=cgQXeF8o)
Stakkahlíð / Háteigsvegur
Bókasafn
Bókasafn Menntavísindasviðs á sér langa og merkilega sögu. Safnið var hluti af Kennaraskólanum allt frá stofnun hans árið 1908 og varð síðan mikilvægur þáttur í starfsemi Kennaraháskóla Íslands og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Nú í sumar lýkur sögu þess sem sjálfstæðs bókasafns því safnið verður þá sameinað Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni.
Að loknum prófum í vor verður húsnæði Bókasafns Menntavísindasviðs, Hylurinn í Hamri, tæmt og safnkostinum og starfsfólki fundinn nýr staður í Þjóðarbókhlöðu.
Í tilefni af þessum tímamótum verður haldið kveðjuhóf í Hylnum miðvikudaginn 8. maí kl. 16-18.
Verið hjartanlega velkomin en vinsamlegast skráið þátttöku hér.
Í tilefni af þessum tímamótum verður haldið kveðjuhóf í Hylnum miðvikudaginn 8. maí kl. 16-18.
Verið hjartanlega velkomin en vinsamlegast skráið þátttöku hér.
![Tímamót - Hylurinn tæmdur](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/qxq8z.jpg?itok=MyjW4O-d)