Skip to main content

Horft til framtíðar: Miðlun, menning, möguleikar

Horft til framtíðar: Miðlun, menning, möguleikar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
12. apríl 2024 13:00 til 15:30
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Föstudaginn 12. apríl kl. 13-15:30 verður haldin ráðstefna á Sjóminjasafninu í Reykjavík um miðlun minja, menningar og náttúru. Fjallað verður um miðlun á vegum safna og stofnana, sýningar, minjasvæði og þjóðgarða og áhersla lögð á fjölbreytta möguleika stafrænnar miðlunar.

Meðal efnisþátta eru nýting samfélagsmiðla til að segja sögur af söfnum, safnkostur á Instagram, vefmiðlun íslenskra þjóðgarða og miðlun fornleifarannsókna á Seyðisfirði og í Amsterdam. Fjallað verður um safn menningefnis á RÚV, nýtingu bókmennta með þjóðlegum fróðleik til sýningargerðar og opnar geymslur lista- og minjasafna. Loks verður sagt frá ævintýrahöllinni, fjölskylduviðburði á barnamenningarhátíð í Reykjavík.

Fyrirlesarar og ráðstefnuhaldarar eru nemendur á meistarastigi í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands. Þeir koma úr ýmsum áttum og búa yfir mismunandi sérfræðiþekkingu en eiga það sammerkt að hafa brennandi áhuga á miðlun. Horft er björtum augum til framtíðar því möguleikarnir eru margvíslegir. Varðveisla og rannsóknir hafa eðlilega verið fyrirferðarmikil innan safna og menningarstofnana en á undanförnum áratugum hefur samfélagslegu hlutverki þeirra ásamt mikilvægi miðlunar verið gefinn meiri gaumur. Segja má að þetta slái tóninn fyrir ráðstefnuna.

Verið öll velkomin. Sjá einnig Facebook-síðu viðburðarins.

Dagskrá:

  • 13:00 Opnun og kynning
  • 13:10-13:20 Karólína Þórsdóttir. „Sögur af söfnum: Hvernig geta söfn nýtt samfélagsmiðla til að segja sögur og mynda tengsl við fylgjendur?“
  • 13:20-13:30 Tryggvi Jóhönnuson Thayer. „Ævintýri eða háski? Vefmiðlun íslenskra þjóðgarða.“
  • 13:30-13:40 Hera Guðmundsdóttir. „Stafræni sýningarsalurinn: Söfn á Instagram.“
  • 13:45-13:55 Anna Diljá Sigurðardóttir. „Stafrænar minjar: Lausnir til miðlunar og varðveislu menningararfs.“ 
  • 13:55-14:05 Rúna K. Tetzschner. „Frá uppgrefti til miðlunar: Ferðalag um aldirnar í Firði á Seyðisfirði.“

Spurningar (10 mínútur) og hlé (10 mínútur). 

  • 14:15-14:25 Margrét Júlía Ingimarsdóttir. „Falinn menningararfur: safn RÚV og aðgengi almennings.“
  • 14:25-14:35 Flóki Larsen. „Opnar safnageymslur: Um nýtingu safnkosts og hlutverk safna.“ 
  • 14:40-14:50 Guðmundur Atli Hlynsson. „Bækur á borð: Möguleikar sýningar með efni þjóðlegs fróðleiks.“
  • 14:50-15:00 Harpa Rut Hilmarsdóttir. „Börn sem þátttakendur í menningarlífi Reykjavíkur: Hlutverk viðburða og sýninga á söfnum á Barnamenningarhátíð.“

Spurningar (10 mínútur).

Föstudaginn 12. apríl kl. 13-15:30 verður haldin ráðstefna á Sjóminjasafninu í Reykjavík um miðlun minja, menningar og náttúru. Fjallað verður um miðlun á vegum safna og stofnana, sýningar, minjasvæði og þjóðgarða og áhersla lögð á fjölbreytta möguleika stafrænnar miðlunar.

Horft til framtíðar: Miðlun, menning, möguleikar