Íslenska - tvítyngi - fjöltyngi: Hlutverk og ábyrgð skólans í íslenskukennslu
![Íslenska - tvítyngi - fjöltyngi: Hlutverk og ábyrgð skólans í íslenskukennslu - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/matthias-heyde-8hlmlrkylve-unsplash.jpg?itok=wfPQsEpd)
Gróska
Ráðstefnusal Grósku og í streymi*
Rannsókna- og fræðslustofa um þroska, læsi og líðan barna og ungmenna, Menntavísindasvið og Heilbrigðisvísindasvið HÍ, Miðja máls og læsis og Félag læsisfræðinga bjóða þér á málþing sem ber yfirskriftina Íslenska - tvítyngi - fjöltyngi: Hlutverk og ábyrgð skólans í íslenskukennslu
Málþingsstjóri: Dröfn Rafnsdóttir
Skráningu lýkur 12. apríl kl. 11:00 *Hlekkur á Zoom verður sendur út að morgni viðburðar fyrir þá sem merkja við að mæta í streymi.
Dagskrá
13:00 – 13:10 - Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra opnar þingið.
13.10 - 14.10 - Staða tví- og fjöltyngdra barna á Íslandi í fjölþjóðlegu samhengi.
Elín Þöll Þórðardóttir, prófessor við McGill-háskóla í Kanada
14.10 - 14.40 - Leikskólinn - Staða tví og fjöltyngdra leikskólabarna á Íslandi og hvað er til ráða?
Jóhanna Thelma Einarsdóttir, prófessor við Menntavísinda- og Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands
14.40 - 15:00 - Margþætt sjónarhorn á hlutverk og ábyrgð skólans í námi barna af erlendum uppruna.
Kriselle Lou Suson Jónsdóttir, doktorsnemi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og brúarsmiður hjá Miðju máls og læsis
15.00 - 15:20 - Kaffihlé
15:20-16:00 - Bætum möguleika fjöltyngdra barna á íslenskunámi í grunnskólum.
Amelia Jara Larimer, doktorsnemi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
16:00-16:15 - Sönglög til málörvunar í íslensku með börnum af pólskum uppruna.
Ingibjörg Sólrún Ágústdóttir leikskólakennari á Urðarhóli Kópavogi
16:15-16:35 – Á íslensku má alltaf finna svar... ...eða hvað?
Guðbjörg Árnadóttir áður grunnskólakennari í Laugarnesskóla og sérfræðingur hjá Miðju máls og læsis
16:35-16:55 - Virk málnotkun í skólastarfi: Reynsla, viðhorf og ritunarfærni nemenda
Sigríður Ólafsdóttir, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
16:55 - Málþingsslit og léttar veitingar
.
![Íslenska - tvítyngi - fjöltyngi: Hlutverk og ábyrgð skólans í íslenskukennslu](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/2zqza.jpg?itok=QfKMCBzX)