Opinberi geirinn og stjórnendaráðgjafar: Ástarsaga
![Opinberi geirinn og stjórnendaráðgjafar: Ástarsaga - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_Askja-1.jpg?itok=qey5237G)
Háskólatorg
Kennslustofa HT-101
MS í verkefnastjórnun kynnir opna málstofu: Opinberi geirinn og stjórnendaráðgjafar: Ástarsaga.
Opinberi geirinn reiðir sig í auknum mæli á stjórnendaráðgjafa til að veita ýmsa þjónustu sem geirinn getur ekki sinnt. Adeel Akmal, lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, mun varpa ljósi á rannsóknir sínar sem hafa sýnt fram á viðvarandi samband á milli hins opinbera og stjórnendaráðgjafa. Sambandið hefur vakið upp spurningar um verðmæti fyrir peninga, sérstaklega þegar fjármunirnir eru fengnir frá skattgreiðendum.
Á grundvelli rannsókna Adeel síðustu fimm ára sem gerðar hafa verið á Nýja-Sjálandi mun Adeel bjóða upp á hagnýta innsýn í aukna virkni stjórnendaráðgjafa og þörfina fyrir skilvirkara samstarf á milli þeirra og hins opinbera. Í gegnum linsu virknikenningarinnar (e. activity theory) verður kafað ofan í raunhæfar aðferðir til að skapa sjálfbærar, samfélagsmiðaðar niðurstöður og hvernig megi á sama tíma hagræða nýtingu opinberra auðlinda.
Ekki missa af þessu tækifæri til að fá dýrmæta innsýn í þróun sambandsins milli hins opinbera og stjórnendaráðgjafa. Fyrirlesturinn fer fram á ensku.
Málstofan fer fram þriðjudaginn 23. apríl frá kl. 12:00 til 13:00 í kennslustofu HT-101 á Háskólatorgi.
Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin!
MS í verkefnastjórnun kynnir opna málstofu: Opinberi geirinn og stjórnendaráðgjafar: Ástarsaga. Opinberi geirinn reiðir sig í auknum mæli á stjórnendaráðgjafa til að veita ýmsa þjónustu sem geirinn getur ekki sinnt. Adeel Akmal, lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, mun varpa ljósi á rannsóknir sínar sem hafa sýnt fram á viðvarandi samband á milli hins opinbera og stjórnendaráðgjafa. Sambandið hefur vakið upp spurningar um verðmæti fyrir peninga, sérstaklega þegar fjármunirnir eru fengnir frá skattgreiðendum. Á grundvelli rannsókna Adeel síðustu fimm ára sem gerðar hafa verið á Nýja-Sjálandi mun Adeel bjóða upp á hagnýta innsýn í aukna virkni stjórnendaráðgjafa og þörfina fyrir skilvirkara samstarf á milli þeirra og hins opinbera. Í gegnum linsu virknikenningarinnar (e. activity theory) verður kafað ofan í raunhæfar aðferðir til að skapa sjálfbærar, samfélagsmiðaðar niðurstöður og hvernig megi á sama tíma hagræða nýtingu opinberra auðlinda.
![Opinberi geirinn og stjórnendaráðgjafar: Ástarsaga](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/rqbkj.jpg?itok=JtFFgm0v)