Háskólahlaupið 2024
![Háskólahlaupið 2024 - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/kri_haskolahlaupid_2019_190912_010.jpg?itok=AZ-e2ufB)
Háskólahlaupið 2024 fer fram miðvikudaginn 10. apríl kl. 15 í nágrenni háskólasvæðisins. Hlaupið er opið bæði starfsmönnum og stúdentum og hægt er að velja á milli tveggja vegalengda, 3 km og 7 km.
Þriggja kílómetra hlaupaleiðin liggur m.a. með fram Suðurgötu, út að Reykjavíkurflugvelli og með fram friðlandinu í Vatnsmýri en sjö kílómetra leiðin í kringum Reykjavíkurflugvöll.
Þátttökugjald er 2.500 kr. og innifalið í því er íþróttabolur merktur Háskólahlaupinu 2024.
Kort af hlaupaleiðum
3 km hlaupaleið
Verðlaun fyrir þau sem koma fyrst í mark á báðum vegalengdum frá Félagsstofnun stúdenta.
Ertu með fyrirspurn um hlaupið? Sendu okkur línu á haskolahlaupid@hi.is
Háskólahlaupið 2024 fer fram miðvikudaginn 10. apríl kl. 15 í nágrenni háskólasvæðisins. Hlaupið er opið bæði starfsmönnum og stúdentum og hægt er að velja á milli tveggja vegalengda, 3 km og 7 km.
![Háskólahlaupið 2024](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/a29x2.jpg?itok=DFQnEzb4)