För kínversks námsmanns um Ísland, brúarsmíði menningarheima og atvinnugreina
![För kínversks námsmanns um Ísland, brúarsmíði menningarheima og atvinnugreina - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/tingtingzheng.jpg?itok=GvASLuDY)
Veröld - Hús Vigdísar
Stofa 007
Tingting Zheng flytur fyrirlestur á vegum Konfúsíusarstofnunarinnar Norðurljós og Kínversk-íslenska menningarfélagsins sem hún nefnir „Jarðhitaævintýri: af för kínversks námsmanns um Ísland, brúarsmíði menningarheima og atvinnugreina.“
Fyrirlesturinn fer fram á ensku í stofu 007 í Veröld - húsi Vigdísar, fimmtudag 21. mars og hefst kl.17:30. Boðið verður upp á léttar veitingar og hvatt til umræðna. Verið öll velkomin.
Tingting Zheng er doktorsnemi í jarðvísindum við Háskóla Íslands sem meðlimur í GRÓ-jarðhitaþjálfun UNESCO. Hún er með B.Sc. gráðu í vatnafræði og auðlindaverkfræði og M.Sc. gráðu í grunnvatnsvísindum og verkfræði frá China University of Geosciences. Tingting starfar nú sem jarðhitalónsverkfræðingur í hlutastarfi hjá Arctic Green Energy, alþjóðlegu fyrirtæki á sviði endurnýjanlegrar orku. Auk þess er hún meðstofnandi Iceland Academy ehf., sem sérhæfir sig í að veita upplýsingar um innritun í íslenska háskóla og bjóða kínverskum nemum til náms á Íslandi.
Tingting Zheng.
![För kínversks námsmanns um Ísland, brúarsmíði menningarheima og atvinnugreina](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/8wagg.jpg?itok=nvPtKW2v)