Málstofa: Mælaborð um farsæld barna
![Málstofa: Mælaborð um farsæld barna - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_1920_KRI_byggingar_160804_10.jpg?itok=_gVDxGDx)
Askja
N-131
Mælaborð um farsæld barna hefur verið í þróun frá því að hafist var handa við að móta löggjöf um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna. Markmið mælaborðsins er að draga fram heildstæða mynd af farsæld barna hér á landi á grundvelli þeirra fjölþættu tölfræðigagna sem eru til staðar hjá ríki og Sveitarfélögum.
Hjördís Eva Þórðardóttir sem kemur frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu, segir frá þróun og mótun mælaborðsins. Hún fer yfir það hvernig mælaborðið getur nýst rannsakendum og þeim sem vinna á vettvangi. Einnig mun Hjördís segja frá áherslum Mennta- og barnamálaráðuneytisins hvað varðar gagnastýrða stefnumótun í þágu farsældar barna og nýju teymi ráðuneytisins sem leiðir vinnu með hagrænar greiningar og árangursmælikvarða á málefnasviði ráðuneytisins.
Málstofa: Mælaborð um farsæld barna
![Málstofa: Mælaborð um farsæld barna](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/9gp7w.jpg?itok=vkBaucbL)