Skip to main content

Staða Bíbíar í goggunarröðum lífsins: Samtvinnun margra ólíkra þátta

Staða Bíbíar í goggunarröðum lífsins: Samtvinnun margra ólíkra þátta  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
14. mars 2024 12:00 til 13:00
Hvar 

Þjóðminjasafn Íslands

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Sólveig Ólafsdóttir er fjórði fyrirlesari hádegisfyrirlestrarraðar RIKK– Rannsóknastofnunar í jafnréttisfræðum á vormisseri 2024 en röðin er tileinkuð samtvinnun. Titill fyrirlestrarins er: „Staða Bíbíar í göggunarröðum lífsins. Samtvinnum margra ólíkra þátta". Fyrirlesturinn verður haldinn kl. 12.00 fimmtudaginn 14. mars í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands. 

Erindið byggir á rannsóknarverkefninu Bíbí í Berlín, sem Sólveig hefur unnið að ásamt Guðrúnu Valgerði Stefánsdóttur, prófessor í fötlunarfræðum við Menntavísindasvið og Sigurði Gylfa Magnússyni, prófessor í sagnfræði við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði við Háskóla Íslands. Í fyrirlestrinum verður varpað ljósi á Bíbí í Berlín eða Bjargeyju Kristjánsdóttur (1927–1999). Bíbí í Berlín lét eftir sig einstakan arf í formi sjálfsævisögu, dagbóka, brúðusafns og bókasafns svo fátt eitt sé talið þrátt fyrir að hafa verið stimpluð „fáviti" af fjölskyldu of safmélagi frá unga aldri. Í sjálfsævisögunni lýsir hún sjálf samfélegsstöðu sinni á mismunandi tímabilum lífsins. Í fyrirlestrinum verður sjálfsmynd Bíbíar greind út frá kenningum samtvinnunar og kerfisgreiningu yfirráða (e. matrix of domination). 

Sólveig Ólafsdóttir er fyrrverandi framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar. Hún lauk doktorsprófi í sagnfræði árið 2022 og gegnir nú stöðu nýdoktors við Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands. 

Frekari upplýsingar um fyrirlestraröðina má finna á heimasíðu RIKK – rikk.hi.is – auk þess sem hægt er að skrá sig á tölvupóstlista RIKK hér. Upptaka af fyrirlestrinum verður gerð aðgengileg á heimasíðu RIKK og Youtube. Fyrirlestraröðin er haldin í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands. 

Sólveig Ólafsdóttir

Staða Bíbíar í goggunarröðum lífsins: Samtvinnun margra ólíkra þátta