Skip to main content

Umferðin og okkar daglega líf

Umferðin og okkar daglega líf - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
14. febrúar 2024 9:15 til 12:30
Hvar 

Gróska

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Vísindagarðar HÍ standa fyrir viðburðaröð um samgöngumál og lausnir: Umferðin og okkar daglega líf, í Grósku. Fyrsti viðburðurinn fer fram miðvikuddaginn 14. febrúar.

Húsið verður opnað kl. 8.15 með ilmandi kaffi og eftirtaldir aðilar kynna vörur og þjónustu í anddyri Grósku; Nytjahjól, Pikkoló, Reiðhjólaverslunin Berlín, Samtök um bíllausan lífsstíl, Strætó, Örninn og fleiri.

Í fyrirlestrasal verða örerindi og umræður um þetta mikilvæga málefni þar sem fjölbreyttar raddir fá að heyrast. Hvernig munu samgöngumálin í Vatnsmýri þróast?

Boðið verður upp á veitingar, morgun- og hádegisverð, kaffi og aðra drykki.

Öll eru velkomin en endilega skráið ykkur svo hægt sé að áætla rétt magn veitinga. 

Dagskrá
8:15 - Morgunverður og kynningarbásar í anddyri Grósku
9:15 - Gísli Marteinn Baldursson, fundarstjóri opnar fundinn

Rakel Anna Boulter, forseti Stúdentaráðs

Ragnheiður Einarsdóttir, Strætó

Þorsteinn M. Hermannsson, Betri samgöngur,

Einar Sveinbjörnsson, Veðurvaktin

Búi Bjarmar og Arna Sigríður, Hjólavarpið.

10:40
Gísli Marteinn stýrir umræðum og gestir í sal taka þátt.
11:00
Hádegisverður og kynningarbásar við gróðurvegginn.

Markmiðið með viðburðinum er að efna til samtals um samgöngur í okkar nærumhverfi - horft verður til framtíðar og fjölbreyttra lausna. Vísindagarðar vilja leggja sitt af mörkum í þeirri miklu umræðu sem nú á sér stað um þróun samgöngumála og hvernig aðrir kostir en einkabíllinn geti verið hagkvæmari.

Þetta er fyrsti viðburðurinn af þremur sem Vísindagarðar standa fyrir um samgöngumál og verður sá næsti á Hönnunarmars í apríl 2024. 

Vísindagarðar HÍ standa fyrir viðburðaröð um samgöngumál og lausnir: Umferðin og okkar daglega líf, í Grósku. Fyrsti viðburðurinn fer fram miðvikuddaginn 14. febrúar.

Umferðin og okkar daglega líf