Skip to main content

Hin árlega Japanshátíð fagnar 20 ára afmæli

Hin árlega Japanshátíð fagnar 20 ára afmæli - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
27. janúar 2024 13:00 til 17:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Japanshátíð við Háskóla Íslands verður haldin í Veröld - húsi Vigdísar laugardaginn 27. janúar kl. 13:00-17:00.

Nemendur og kennarar í japönsku máli og menningu við Háskóla Íslands bjóða ykkur hjartanlega velkomin á hátíðina sem nú er haldin í tuttugasta sinn. Hátíðin er skipulögð í samstarfi við sendiráð Japans á Íslandi, en fjölmörg félagasamtök taka einnig þátt í dagskránni líkt og undanfarin ár.

Hátíðin er frábært tækifæri til að kynnast japanskri menningu, en í ár verður m.a. boðið upp á  fjölbreyttar sýningar, smiðjur, föndurhorn og kynningarbása. Hápunktur hátíðarinnar í ár er sýning á vegum KROM Kendama hópsins, en þeir sýna listir sínar og þrautir með japanska viðarleikfanginu kendama. Sjá nánar um kendama og dæmi um kendama-tækni

Gestir geta einnig tekið þátt í manga-teiknismiðju sem haldin verður í samstarfi við Íslenska myndasögusamfélagið og fengið kennslu í tveimur vinsælum borðspilum shogi og go, en bæði eiga sér aldagamla sögu. Sendiherra Japans á Íslandi, Ryotaro Suzuki, sem er mikill áhugamaður um shogi sér um kennsluna, en spilið er einnig þekkt sem ”japönsk skák”. Íslenska Go Félagið býður gestum og gangandi að spreyta sig á go, sem á rætur að rekja til Austur-Asíu og er almennt talið eitt elsta borðspil í heimi.

Helstu styrktaraðilar hátíðarinnar eru Háskóli Íslands (Styrkur vegna stuðnings við samfélagsvirkni) og The Scandinavia-Japan Sasakawa Foundation.

Sjá einnig Facebook-síðu hátíðarinnar

Dagskrá 13:00-17:00

Húsið opnar kl. 13:00. Fjölbreyttir viðburðir fara fram á þremur hæðum í húsinu.

Stakir viðburðir:

  • 13:15-13:30       Opnunarávörp
  • 13:40-14:00      Aikido-sýning
  • 14:00-15:40      Kvikmyndasýning, “Every Day A Good Day”
  • 14:00-15:00      Shogi-örnámskeið með Suzuki sendiherra
  • 14:00-15:00      Manga-teiknismiðja í boði Íslenska Myndasögusamfélagsins
  • 15:00-16:00      Go örnámskeið á vegum Íslenska Go Félagsins
  • 15:30-15:50      Karate-sýning
  • 16:00-17:00      Kendama-sýning

Í gangi 13:00-17:00

  • Go-spilasmiðja
  • Shogi-spilasmiðja
  • Origami föndurhorn
  • Japönsk skriftar- og teiknismiðja
  • Leikhorn með japönskum leikföngum
  • Kynningarbásar

Japanshátíð við Háskóla Íslands verður haldin í Veröld - húsi Vigdísar laugardaginn 27. janúar kl. 13:00-17:00.

Hin árlega Japanshátíð fagnar 20 ára afmæli