Lokaráðstefna WELFARE verkefnisins
![Lokaráðstefna WELFARE verkefnisins - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_askja_171215.jpg?itok=kOKum3ec)
Aðalbygging
Hátíðasal
Verkefnið WELFARE – Designing the future welfare systems hefur það markmið byggja upp færni í samfélagslegu nýsköpunarstarfi meðal fagfólks, þriðja geirans og háskólanema. Vaxandi, miðstöð um samfélagslega nýsköpun við Háskóla Íslands, leiðir verkefnið sem unnið er í samstarfi við háskóla og samfélagsfyrirtæki í Belgíu, Litháen og Grikklandi. Verkefnið er styrkt af Erasmus+ menntaáætlun Evrópusambandsins.
Lokaráðstefna verkefnisins fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands þriðjudaginn 30. janúar kl. 13-16 og hún er öllum opin. Hún verður einnig í streymi.
Á ráðstefnunni mun fjölbreyttur hópur fyrirlesara kynna menntun, stuðningsumhverfi og nýsköpunarverkefni tengd samfélagslegri nýsköpun. Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni er Lars Hulgård, prófessor við Háskólann í Hróarskeldu í Danmörku, en hann mun fjalla um stuðningsumhverfi samfélagslegrar nýsköpunar í norræna velferðarkerfinu.
Sjá dagskrá https://vaxandi.hi.is/lokaradstefna-welfare/
Ráðstefnan fer fram á ensku.
Lokaráðstefna WELFARE verkefnisins
![Lokaráðstefna WELFARE verkefnisins](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/jqrvd.jpg?itok=hCKxy6Ym)